30.09.26 - 18:13
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópubikarinn: Diljá Ýr skoraði í öruggum sigri

Mynd: Brann

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Brann

Það er nóg um að vera í Evrópubikar kvenna í dag og í kvöld og er fyrstu sjö leikjunum þegar lokið.
Diljá Ýr Zomers var í byrjunarliði Brann og skoraði í 4-0 sigri gegn HJK frá Helsinki. Diljá skoraði annað mark leiksins og fékk að spila allan tímann. Brenna Lovera var með henni í byrjunarliðinu og var kippt af velli á 60. mínútu, í stöðunni 2-0.
Brann vann fyrri leikinn 2-0 og því urðu samanlagðar lokatölur 6-0. Brann tryggði sér með þessum sigri þátttökurétt í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins.
Tveir Íslendingar komu þá við sögu í sigri Vålerenga gegn Feyenoord sem dugði þó ekki til að koma liðinu áfram í næstu umferð. Fanney Inga Birkisdóttir varði mark norska stórliðsins og byrjaði Arna Eiríksdóttir í hjarta varnarinnar í 2-1 sigri.
Vålerenga tapaði fyrri leiknum 4-1 og er því dottið úr leik.
Selma Sól Magnúsdóttir var svo ónotaður varamaður í frábærum sigri Rosenborg gegn Slovan Liberec eftir að hafa tapað fyrri leiknum ytra.
Liberec vann 3-1 í Tékklandi en Rosenborg svaraði með 4-1 sigri í Noregi.
Ajax, Sparta Prag, Myjava og PSV Eindhoven eru einnig komin áfram í 16-liða úrslitin og eru nokkrir spennandi leikir í gangi þessa stundina, þar á meðal útileikir FH og Breiðabliks gegn Eintracht Frankfurt og Czarni Sosnowiec.
Brann 4 - 0 HJK (6-0 samanlagt)
1-0 L. Davidson ('10)
2-0 Diljá Ýr Zomers ('53)
3-0 A. Aahjem ('67)
4-0 A. Aahjem ('71)
Valerenga 2 - 1 Feyenoord (3-5 samanlagt)
Rosenborg 4 - 1 Slovan Liberec (5-4 samanlagt)
Fortuna Hjörring 0 - 0 PSV (0-1 samanlagt)
Myjava 1 - 1 PAOK (4-3 samanlagt)
Aktobe 1 - 0 Ajax (1-8 samanlagt)
Farul Constanta 0 - 4 Sparta Prag (1-8 samanlagt)