„Ég er knattspyrnuþjálfari, ekki fyrirsæta," sagði reiður Julian Nagelsmann á fréttamannafundi þegar einn fréttamaður spurði hann út í fötin sem Nagelsmann klæddist á meðan leik RB Leipzig og Manchester United stóð.
Nagelsmann var greinilega ekki í stuði til að ræða jakkafötin eftir sitt stærsta tap á ferlinum. Leikar enduðu 5-0 fyrir Manchester United.
Blaðamaður Sky Germany spurði Nagelsmann hvort jakkinn sem hann klæddist færi nokkuð í skápinn með öðrum lukkujökkum.
„Ekki tala svona mikið um fötin mín. Ég er í því sem ég vil vera. Ég er þjálfari, ekki fyrirsæta," sagði Nagelsmann.
Julian Nagelsmann did not want to discuss his suit 😳 pic.twitter.com/0tQ5IKbnaZ
— ESPN FC (@ESPNFC) October 29, 2020
Athugasemdir