Fotbolti.net
30.10.26 - 08:53
Elvar Geir Magnússon

Grealish brást liðinu - „Betur settir án hans“

Grealish, sem er 31 árs , er á láni hjá Everton frá Manchester City.

Grealish, sem er 31 árs , er á láni hjá Everton frá Manchester City.

Canon

Mynd: EPA

Það voru fáir gapandi hissa þegar fréttir bárust af því í gær að Jack Grealish væri ekki í leikmannahópi Everton vegna agabanns. Í hans fjarveru vann Everton 3-1 sigur gegn Newcastle í deildabikarnum.

Óvíst er hvort Grealish mæti aftur í hóp á mánudaginn, aftur gegn Newcastle en þá í deildinni.

Grealish er þekktur grallaraspói og hefur oft komist á síður blaðanna fyrir drykkju og djamm.
Grealish í agabanni
TENGT EFNI

Grealish í agabanni

„Mikil vinna, auðmýkt og barátta fyrir liðsfélagana; þetta eru þrír eiginleikar sem Jack Grealish er ekki að sýna," skrifar Lewis Steele, blaðamaður Daily Mail.

„Þetta eru jafnframt eiginleikar sem reyndasti stjóri ensku úrvalsdeildarinnar, David Moyes, krefst frá sínum leikmönnum. Hann sendi Grealish, leikmann sem var eitt sinn keyptur á 100 milljónir punda, í skammarkrókinn fyrir að skrópa á æfingu."

„Fréttir af þessu nýjasta agabroti hans voru helsta umræðuefnið en ekkert fór fyrir fjarveru Grealish í leiknum sjálfum. Ungir og orkumiklir leikmenn sem komu inn í hans stað stóðu sig nefnilega frábærlega. Enginn Grealish? Ekkert mál."

„Moyes hefur þurft að harka í gegnum tímabilið með þunnan leikmannahóp í kjölfar misheppnaðs sumarglugga, en hann hefur gert gott úr erfiðri stöðu. Stöðu sem varð ekki auðveldari vegna hegðunar Grealish sem hefur brugðist liðsfélögum sínum."

„En þar sem hópur ungra og efnilegra leikmanna er að blómstra hjá Everton, ásamt reyndum og öguðum köppum og stjóra sem þráir titil, þarf Everton ekki á Grealish að halda í augnablikinu. Þeir eru betur settir án hans," skrifar Steele.

Grealish, sem er 31 árs , er á láni hjá Everton frá Manchester City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.