Fotbolti.net
29.10.26 - 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sá hreinskilni kallar eftir meiri Eyjastemningu - „Segi hlutina með hagsmuni ÍBV fyrir brjósti"

Ætli við höfum ekki bara á endanum allir brugðist

Ætli við höfum ekki bara á endanum allir brugðist

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Arnar Magnússon hefur sagt skilið við ÍBV eftir að hafa allan sinn feril verið hjá félaginu. Hann samdi við Val til þriggja ára, var tilkynntur sem nýr leikmaður félagsins í gær.

Sigurður segir í viðtali við Fótbolta.net að það sé er erfitt að skilja við ÍBV, sérstaklega þar sem liðið féll úr Bestu deildinni í sumar.
„Ekki erfið ákvörðun að fara í Val en mjög erfið ákvörðun að fara frá ÍBV"
TENGT EFNI

„Ekki erfið ákvörðun að fara í Val en mjög erfið ákvörðun að fara frá ÍBV"

Margir Eyjamenn sem fóru og tengingin minnkaði
Hvað vilt þú sjá gerast hjá ÍBV?

„Ég er áfram mjög tengdur félaginu, tala sem stuðningsmaður núna eftir að ég er farinn annað. Það var kominn rosa góður kjarni af Vestmanneyingum og það var rosa góð liðsheild. Liðið sem fór upp 2024 og árin á undan því, '23 vissulega vonbrigði, en það var mikið af Vestmanneyingum í hópnum. Þetta var ÍBV lið. Það skipti menn miklu máli hvernig félaginu gekk og hvernig stemningin var. Svo kvarnaðist rosa hratt úr því. Við missum stóra karaktera, Vestmanneyinga, og það of hratt. Eiður Aron, Jón Ingason, Tómas Bent, Siggi Ben, Eyþór Orri, jón Kristinn, Nökkvi Már og fleiri, þessi kjarni hvarf rosalega hratt. Mér fannst stemningin breytast og maður tengdi ekki alltaf eins við klefann eins og á þessum árum, kannski var þetta einstakur klefi ef horft er í það."

„Ég væri til í að sjá menn reyna að búa aftur til einhverja Eyjastemningu, búa til kjarna af ÍBVurum og fá svo gæðaleikmenn til að fylla upp í þau pláss sem þarf að fylla upp í. Ég náttúrulega vil sjá liðið fara upp sem fyrst því ÍBV á heima í efstu deild. Ég hef trú á því að það gerist."


Var alltaf með hagsmuni ÍBV og liðsins fyrir brjósti
Sigurður Arnar og fyrirliðinn Alex Freyr voru þeir leikmenn ÍBV sem oftast komu í viðtöl eftir leiki Eyjamanna í sumar og undanfarin ár. Þegar Sigurður talaði var hann lítið í því að reyna fegra hlutina og var afskaplega hreinskilinn.

Þú varst svo hreinskilinn að maður velti því stundum fyrir sér hvort liðsfélagarnir væru sáttir við gagnrýnina. Fékkstu aldrei skot á þig fyrir þetta?

„Ég fékk ekki skot á mig nei. Það sem ég segi í viðtölum er ekkert öðruvísi en það sem ég segi á æfingasvæðinu, og ég er kannski ennþá hreinskilnari á æfingasvæðinu. Ég hef alltaf verið mjög kröfuharður, bæði á sjálfan mig og aðra í kringum mig. Hópurinn sem við vorum með á sínum tíma, strákar sem ólust upp saman og voru svo saman í einhver ár í meistaraflokki, við vorum vanir því að tala svona við hvorn annan. Svo voru kannski aðrir sem kannski geta ekki alltaf tekið því, en það varð þá bara að reyna „settla" það. Ég er ekki í því að reyna ráðast á neinn eða slíkt, vil bara að hlutirnir séu gerðir almennilega, sama hvort það sé ég eða einhver annar. Ef mér finnst ég þurfa að segja eitthvað til þess að auka líkurnar á árangri, þá geri ég það. Svo á móti bítur maður í tunguna á sér og sleppir því að segja hluti sem hjálpa engum."

„Hvort sem það hefur tekist hjá mér eða ekki, þá segi ég hlutina með hagsmuni liðsins fyrir brjósti. Þetta hefur alltaf snúist um að reyna ná sem bestum árangri fyrir ÍBV."


Hæfileikarnir til staðar en vantaði upp á liðsheildina
Út frá spilamennsku og þinni tilfinningu, hvers vegna féll ÍBV úr Bestu deildinni?

„Það er rosalega margt sem veldur því. Það var ekki eitthvað eitt sem vantaði upp á. Það voru hlutir sem við vorum að gera vel, en við vorum ekki að gera það sem skiptir mestu máli sem er að vinna leiki og ná í stig. Að einhverju leyti fannst mér vanta aðeins meiri liðsheild. Ég held að ÍBV þurfi að velja vel inn þá leikmenn sem koma á næstu ári, fá inn karaktera og liðsmenn. Mér fannst hæfileikarnir til staðar en mér fannst við ekki ná að búa til liðsheildina sem þurfti til að ná árangri."

„Maður horfir í þetta hjá sjálfum sér líka, mér finnst ég sjálfur hafa brugðist. Ég taldi mig vera leiðtoga og ég náði ekki að þjappa hópnum saman. Ætli við höfum ekki bara á endanum allir brugðist, hvort sem það var stjórn, þjálfarar eða leikmenn. Allir brugðust að einhverju leyti, en það voru líka margir góðir hlutir."

„Svo það sé alveg á hreinu er ég ekki að setja út á neinn, en við saman náðum ekki að finna formúluna. Ég hef ennþá mikla trú á fólkinu sem er á bakvið félagið og ég kalla eftir því að það komi fleiri hendur til að hjálpa, hvet þá sem hafa áhuga að hjálpa til. Ég hef líka fulla trú á þjálfarateyminu, að þeir snúi þessu við. Mér fannst vera strúktúr á liðinu, það þarf aðeins að fínpússa og reyna búa til liðsheild. Þá fer þetta að malla,"
segir Siggi að lokum.
Þetta var ÍBV lið. Það skipti menn miklu máli hvernig félaginu gekk og hvernig stemningin var

Þetta var ÍBV lið. Það skipti menn miklu máli hvernig félaginu gekk og hvernig stemningin var

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta hefur alltaf snúist um að reyna ná sem bestum árangri fyrir ÍBV

Þetta hefur alltaf snúist um að reyna ná sem bestum árangri fyrir ÍBV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Ekki sama Eyjastemning og síðustu ár á undan.

Ekki sama Eyjastemning og síðustu ár á undan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Afskaplega hreinskilinn í viðtölum.

Afskaplega hreinskilinn í viðtölum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég hef líka fulla trú á þjálfarateyminu, að þeir snúi þessu við

Ég hef líka fulla trú á þjálfarateyminu, að þeir snúi þessu við

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hæfileikarnir voru til staðar en liðsheildin var ekki nægilega góð.

Hæfileikarnir voru til staðar en liðsheildin var ekki nægilega góð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.