Fotbolti.net
29.10.26 - 21:26
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Leikvangurinn sem mun leysa San Siro af hólmi í Mílanó

Svona mun Generali leikvangurinn líta út. Framkvæmdir hefjast 2028.

Svona mun Generali leikvangurinn líta út. Framkvæmdir hefjast 2028.

Canon

Mynd: Generali Stadium

Inter og AC Milan hafa loks kynnt áætlanir um nýjan leikvang sem mun taka 71.500 áhorfendur. Generali leikvangurinn mun taka við af hinum goðsagnakennda San Siro en framkvæmdir munu ekki hefjast fyrr en árið 2028.

Undirbúningur verkefnisins hefur staðið yfir í meira en áratug, en vegna ýmissa hindrana var upphaflega hönnunin lögð til hliðar.

Nýja hönnunin var kynnt í Mílanó í kvöld. Sömu arkitektar komu einnig að hönnun nýja Wembley í Lundúnum.

Grindarvirki utan á leikvangnum sækir innblástur í dómkirkjuna í Mílanó. Heitustu stuðningsmenn Inter verða bak við markið í norðurhlutanum en suðurhlutinn er ætlaður stuðningsmönnum AC Milan.
Nafnarétturinn hefur verið seldur ítalska tryggingarisanum Generali en gerður var samningur sem gildir í 25 ár.


Hönnunin sækir innblástur í dómkirkjuna í Mílanó.

Hönnunin sækir innblástur í dómkirkjuna í Mílanó.

Canon

Mynd: Generali Stadium

Stuðningsmenn Inter og AC Milan fá sitthvora stúkuna.

Stuðningsmenn Inter og AC Milan fá sitthvora stúkuna.

Canon

Mynd: Generali Stadium

San Siro verður rifinn og þessi leikvangur mun rísa í staðinn.

San Siro verður rifinn og þessi leikvangur mun rísa í staðinn.

Canon

Mynd: Generali Stadium

Leikvangurinn er einnig hannaður með það í huga að þar verði stórtónleikar og aðrir skemmtilegir viðburðir.

Leikvangurinn er einnig hannaður með það í huga að þar verði stórtónleikar og aðrir skemmtilegir viðburðir.

Canon

Mynd: Generali Stadium

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.