29.10.26 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kveður KR og dreymir um að starfa erlendis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var hjá Víkingi áður en hann fór í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Styrktarþjálfarinn Guðjón Örn Ingólfsson hefur látið af störfum hjá KR og skoðar hann nú hvaða möguleikar gætu verið í boði fyrir sig. Hann starfaði áður hjá Víkingi og er álitinn einn allra besti styrktarþjálfari landsins.
„Ég er búinn að vera í KR í þrjú ár, þetta er uppeldisfélagið og frábært að vera þar. Mig langaði í þetta verkefni þegar ég skrifaði undir fyrir 2024 en á sama var ég að skoða möguleika úti. Ég fékk hringingu að utan ári eftir og aftur í fyrra. Fjölskylduaðstæður voru þannig í fyrra að það hentaði ekki að fara út, en ég myndi klárlega skoða það ef það kæmi upp möguleiki núna. Ég er líka að horfa til þess að fara í doktorsnám," segir Gaui sem hefur fengið áhugaverð tilboð að utan á síðustu árum.
Starfið krefst þess að hann sé viðstaddur æfingar og leiki og því takmarkað hægt að gera með fjölskyldunni yfir sumartímann. Það er líka þáttur sem Gaui horfir í.

„Þetta er full vinna, ég hætti eiginlega allri einkaþjálfun þegar ég tók við KR. Ég var með einhverja atvinnumenn í fríum hjá þeim. Það er undirbúningsvinna fyrir æfingar, fundir og markmið. Í fyrra var hlutverkið enn stærra en það breyttist með komu sjúkraþjálfarans."
Guðjón stýrði öllum lyftingaræfingum og sá til þess að menn væru í standi.
„Erlendis eru 5-6 aðilar að sinna þessu, menn fá að vera sérhæfðari. Hér heima er maður með alla yfirsýn og kemur að mörgum þáttum."
Það var minna um meiðsli hjá KR i sumar miðað við tímabilið á undan.
„Við vorum í fyrra óheppnir með meiðsli, bæði vöðvameiðsli og brot. Í ár var umgjörðin eðlilegri, betra utanumhald. Ég gat betur fylgst með öllu eftir að Magnus (Börsheim) kom inn. Fyrir mér skiptir öllu máli að vita hvað er í gangi. Það er eitt að sjá tölur á blaði en annað að sjá tölur á blaði og tengja við það sem ég sé með augunum á æfingunni. Sprettur er ekki bara sprettur."
Gaui segir að það hafi áhrif á sig þegar leikmenn verða fyrir vöðvameiðslum.
„Maður fer alltaf að skoða sjálfan sig og pæla hvað sé að gerast. Í fyrra vorum við að lenda í veseni, menn náðu sér ekki að fullu áður en þeir snéru aftur. Það voru augnablik þar sem maður varð hálf þunglyndur af meiðslunum."
Það var gaman fyrir þjálfarann að sjá framþróunina á liðinu.
„Það var ógeðslega gaman að vera partur af þessu. Maður skilur við liðið á réttum stað og það finnst mér skipta öllu máli. Fyrsta árið, '24, var stórfurðulegt, þrír aðalþjálfarar og 2-3 aðstoðarþjálfarar. Ég kom úr Víkingsumhverfinu, sigurkúltúr, og þessi óstöðugleiki var allt annar heimur fyrir manni."
„Í fyrra var mjög mikið af leikmannabreytingum, menn að koma inn sem kannski réðu misvel við álagið. Það getur líka verið hættulegt þegar tveir æfingasjúkir menn eru saman í því að ýta þeim áfram," segir Gaui og hlær. Hann á þar við sig sjálfan og aðalþjálfarann Óskar Hrafn.
KR fór úr því að bjarga sæti sínu í Bestu deildinni í lokaumferðinni 2025 í það að enda í 2. sæti á nýliðnu tímabili.