Fotbolti.net
29.10.26 - 22:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Meistaradeild kvenna: Emelía og stöllur fengu skell gegn meisturunum

Meistaradeild kvenna: Emelía og stöllur fengu skell gegn meisturunum
Canon

Mynd: HB Köge

Kvennaboltinn
Emelía Óskarsdóttir spilaði 80 mínútur þegar Koge steinlá 8-0 gegn ríkjandi Evrópumeisturum Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld.

Markaskorunin var vel dreyfð hjá Barcelona. Claudia Pina skoraði þrennu og sex leikmenn skoruðu eitt hver.

Barcelona er eina liðið með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir en Koge er í 11. sæti með þrjú stig.

Það var öllu meiri spenna í Manchester þar sem Man City fékk PSG í heimsókn. Man City náði forystunni undir lokin en PSG jafnaði metin stuttu síðar og jafntefli var niðurstaðan.
Koge W 0 - 8 Barcelona W
0-1 Caroline Graham ('12 )
0-2 Ewa Pajor ('33 )
0-3 Esmee Brugts ('54 )
0-4 Patricia Guijarro ('59 )
0-5 Clara Serrajordi ('62 )
0-6 Kika Nazareth ('67 )
0-7 Claudia Pina ('70 )
0-8 Claudia Pina ('85 )

Manchester City W 1 - 1 PSG W
1-0 Khadija Shaw ('85 , víti)
1-1 Tara Elimbi ('88 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.