Fotbolti.net
29.10.26 - 14:25
Elvar Geir Magnússon

Daníel Leó í ótímabundið leyfi af fjölskylduástæðum

Daníel Leó í ótímabundið leyfi af fjölskylduástæðum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenski landsliðsmaðurinn Daníel Leó Grétarsson er kominn í ótímabundið leyfi hjá félagsliði sínu, AGF í Danmörku.

Varnarmaðurinn hefur fengið leyfi af persónulegum ástæðum en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Að sögn Carsten V. Jensen, yfirmanns fótboltamála hjá AGF, er þetta vegna fjölskyldumála.

„Við styðjum hann auðvitað heilshugar í þessu. Og við hlökkum til að sjá hann snúa aftur þegar rétti tíminn kemur," segir hann.
Daníel Leó er lykilmaður í vörn íslenska landsliðsins. Í komandi mánuði eru leikir gegn Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni en óvíst er hvort Daníel verði með í því verkefni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.