Fotbolti.net
30.10.26 - 10:15
Elvar Geir Magnússon

Breiðablik vildi Magga en fékk nei frá Aftureldingu

Magnús Már Einarsson.

Magnús Már Einarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net setti Breiðablik sig í samband við Aftureldingu vegna áhuga á þjálfara liðsins, Magnúsi Má Einarssyni.

Afturelding gaf Breiðabliki þvert nei í gær og sagði að Magnús væri ekki fáanlegur.

Magnús hefur náð frábærum árangri sem þjálfari hjá sínu uppeldisfélagi. Í sumar kom hann liðinu aftur upp í Bestu deildina auk þess að það komst í bikarúrslitaleikinn, þar sem það beið lægri hlut gegn Blikum.
Allt bendir til þess að Jökull taki við Breiðabliki
TENGT EFNI

Allt bendir til þess að Jökull taki við Breiðabliki

Breiðablik er í þjálfaraleit en líklegast er talið að Jökull Elísabetarson, fyrrum þjálfari Stjörnunnar og fyrrum leikmaður Blika, taki við liðinu. Arnar Grétarsson var framan af vikunni talinn líklegastur af veðbönkum.

Breiðablik lét Ólaf Inga Skúlason fara eftir tímabilið en spilamennska liðsins og úrslit í Bestu deildinni voru ekki eftir væntingum. Í skoðanakönnun sem var á forsíðu telja 58% lesenda að Breiðablik hafi gert rétt með því að láta Ólaf taka pokann sinn en 42% svara því neitandi.
Breiðablik vildi Magga en fékk nei frá Aftureldingu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.