Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. nóvember 2020 09:23
Magnús Már Einarsson
Raul Jimenez höfuðkúpubrotnaði - Fór í aðgerð í gær
Mynd: Getty Images
Raul Jimenez, framherji Wolves, fór í aðgerð í London í gærkvöldi eftir harkalegt skallaeinvígi í leik gegn Arsenal. Jimenez höfuðkúpubrotnaði í leiknum.

Jimenez skallaði boltann burt eftir hornspyrnu en í kjölfarið kom David Luiz á fleygiferð og þeir skullu saman.

Jimenez lá hreyfingarlaus á vellinum og talsverð töf var á leiknum. Mexíkóinn var fluttur beint á sjúkrahús í skoðun. Líðan Jimenez er betri í dag en hann fór í aðgerð í gærkvöldi.

„Hann hefur ást og stuðning okkar núna þegar hann byrjar endurhæfingu," sagði í yfirlýsingu frá Wolves í dag.

Sjá einnig:
Sjáðu atvikið: Jimenez fluttur á sjúkrahús eftir skallaeinvígi



Athugasemdir
banner
banner