30.12.14 - 17:20
Magnús Már Einarsson
Orri Sigurður Ómarsson í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur fengið U21 árs landsliðsmanninn Orra Sigurð Ómarsson til liðs við sig en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Orri er 19 ára gamall en hann getur spilað sem bakvörður, miðvörður og miðjumaður.
Valsmenn stefna á að nota Orra í hjarta varnarinnar en frá síðasta tímabili eru miðverðirnir Magnús Már Lúðvíksson og Mads Nielsen horfnir á braut.
Orri hefur frá ársbyrjun 2012 leikið með vara og unglingaliði AGF en hann kom til danska félagsins frá HK.
,,Valur bindur miklar vonir við Orra Sigurð spilandi í hjarta varnar liðsins á næstu árum, þarna er á ferð virkilega hæfileikaríkur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér,\" segir í frétt á heimasíðu Vals.

Heimild: Heimasíða Vals