Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 16:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stuðningsmenn Düsseldorf gjörsamlega trylltir út af fréttunum um Ísak
Ísak er á leið til Köln.
Ísak er á leið til Köln.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hefur síðustu ár leikið með Düsseldorf.
Hefur síðustu ár leikið með Düsseldorf.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er óhætt að segja að stuðningsmenn Fortuna Düsseldorf séu brjálaðir eftir að fréttir bárust að því að Ísak Bergmann Jóhannesson væri að ganga í raðir Köln.

Ísak Bergmann virðist vera á leið til Köln sem vann þýsku B-deildina í vetur. Düsseldorf endaði í sjötta sæti.

Það er Bild sem segir frá og þar segir að Köln sé að virkja 5,5 milljóna evra riftunarákvæði í samningi Ísaks við Düsseldorf. Þar er sagt að Ísak fari í læknisskoðun hjá nýju félagi og mestar líkur séu á því að Köln verði niðurstaðan; 5,5 milljónir evra eru rétt tæplega 800 milljónir íslenskra króna.

Þetta eru mjög áhugaverð því það er mikill rígur á milli Köln og Düsseldorf, en stuðningsmenn síðarnefnda félagsins hafa lýst yfir óánægju sinni með þetta allt saman. Einn stuðningsmaður beindi kveikjara að treyju Ísaks.

Hér fyrir neðan má sjá brot af umræðunni á samfélagsmiðlinum X sem hét áður Twitter.

„Hvernig getur einhver verið svona mikill málaliði," skrifar einn og bætir við: „Ísak hefur kysst merkið í hverjum einasta leik og talað um að draumur sinn sé að spila fyrir Fortuna í Bundesligunni. Hann á að aldrei að koma til Düsseldorf aftur."

Þá eru aðrir sem óska þess að Ísak meiðist illa og hann kallaður Júdas.

En stuðningsmenn Köln, þeir eru glaðir þar sem þeir eru að fá frábæran leikmann í sitt lið.

Ísak átti mjög gott tímabil með Düsseldorf á nýliðinni leiktíð, hljóp manna mest í þýsku B-deildinni, skoraði ellefu mörk og lagði upp sex í deildinni. Skagamaðurinn varð 22 ára í mars og er í landsliðshópnum sem kemur saman eftir helgi.





Athugasemdir
banner