Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 18:05
Brynjar Ingi Erluson
Í hópnum hjá Tékkum þrátt fyrir að hafa spilað aðeins 68 mínútur á tímabilinu
Adam Hlozek var frá stærstan hluta tímabilsins en kemst samt í hópinn
Adam Hlozek var frá stærstan hluta tímabilsins en kemst samt í hópinn
Mynd: EPA
Miroslav Koubek, þjálfari tékkneska landsliðsins, hefur valið 26-manna hópinn fyrir HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

Tékkneska fótboltasambandið staðfesti valið á hópnum á samfélagsmiðlum sínum í kvöld.

Adam Hlozek, leikmaður Hoffenheim í Þýskalandi, er í hópnum þrátt fyrir að hafa spilað aðeins nokkrar mínútur á tímabilinu vegna langtímameiðsla.

Koubek staðfesti á fréttamannafundi að þeir Christophe Kabongo, Pavel Bucha og Tomas Ladra fari ekki með liðinu til Norður-Ameríku, en Jan Kuchta, Jaroslav Zeleny og Hugo Sochurek, leikmann Spörtu Prag, eru allir í hópnum.

Stjarna liðsins er Patrik Schick, framherji Bayer Leverkusen, en hann hefur verið að raða inn mörkunum í Þýskalandi. Ladislav Krejci, Toumas Soucek, Vladimir Coufal, Tomas Holes og Pavel Sulc verða einnig mikilvægir fyrir liðið.

Tékkar mæta Suður-Kóreumönnum í fyrsta leiknum á HM, en þjóðirnar leika í A-riðli ásamt Mexíkó og Suður-Afríku.

Hópurinn:

Markverðir: Lukas Hornícek (Braga), Matej Kovar (PSV), Jindrich Stanek (Slavia Praha).

Varnarmenn: Vladimír Coufal (Hoffenheim), David Doudera (Slavia Praha), Tomas Holes (Slavia Praha), Robin Hranac (Hoffenheim), Stepan Chaloupek (Slavia Praha), David Jurásek (Slavia Praha), Ladislav Krejcí (Wolves), Jaroslav Zelený (Sparta Praha), David Zima (Slavia Praha).

Miðjumenn: Lukas Cerv (Viktoria Plzen), Vladimír Darida (Hradec Králové), Lukas Provod (Slavia Praha), Michal Sadílek (Slavia Praha), Hugo Sochurek (Sparta Praha), Alexandr Sojka (Viktoria Plzen), Tomas Soucek (West Ham), Pavel Sulc (Lyon), Denis Visinsky (Viktoria Plzen).

Sóknarmenn: Adam Hlozek (Hoffenheim), Tomas Chorý (Slavia Praha), Mojmír Chytil (Slavia Praha), Jan Kuchta (Sparta Praha), Patrik Schick (Leverkusen).



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp