Fotbolti.net
31.07.20 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson

Mjólkurbikarinn: KR heimsækir Breiðablik

Mjólkurbikarinn: KR heimsækir Breiðablik
Canon

Mynd: Hulda Margrét

Mjólkurbikarinn
Búið er að draga í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Leikirnir eiga að fara fram 10. og 11. september.
Breiðablik mætir Íslandsmeisturum KR á meðan FH tekur á móti Stjörnunni í grannaslag.

Garðbæingar slógu ríkjandi bikarmeistara Víkings R. úr leik í gær.

ÍBV og Fram eigast við í Lengjudeildarslag en liðin sendu Pepsi Max-deildarlið KA og Fylki heim í gær.

Að lokum mun sigurvegarinn úr viðureign Vals og ÍA spila við HK. Valur átti að spila við ÍA í dag en leiknum frestað vegna kórónuveirunnar.

8-liða úrslit:
Breiðablik - KR
FH - Stjarnan
ÍBV - Fram
Valur eða ÍA - HK
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.