Ítalskir fjölmiðlar segja að Inter sé að ganga frá félagaskiptum miðjumannsins tvítuga Sandro Tonali frá Brescia.
Corriere di Brescia segir að félögin tvö hafi komist að samkomulagi um lánssamning en Inter sé svo skyldugt til að kaupa leikmanninn að lánstímanum liðnum.
Corriere di Brescia segir að félögin tvö hafi komist að samkomulagi um lánssamning en Inter sé svo skyldugt til að kaupa leikmanninn að lánstímanum liðnum.
Tonali hefur átt sjö stoðsendingar og skorað eitt mark fyrir Brescia á þessu tímabili.
Sagt er að hann muni ferðast til Mílanó á mánudaginn og ganga frá samningi til 2024.
Athugasemdir