lau 31. júlí 2021 07:30
Victor Pálsson
Hvetur Liverpool til að reyna við Grealish - Styrkir öll lið
Mynd: Getty Images
Liverpool ætti ekki að hika við að reyna við miðjumanninn Jack Grealish í sumar ef peningarnir eru til staðar.

Þetta segir Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, en Grealish er mest orðaður við bláliða í Manchester City.

Samkvæmt Ferdinand þá myndi Grealish bæta öll lið í ensku deildinni og þar á meðal sigurvegara Meistaradeildarinnar, Chelsea.

Aston Villa mun reyna að halda Grealish í sumar en það gæti þó reynst of erfitt verkefni.

„Bætir hann öll lið í ensku úrvalsdeildinni? Já, punktur. Hann bætir hvert einasta lið," sagði Ferdinand.

„Ef ég er Liverpool þá reyni ég við hann. Ef ég er Manchester City þá tek ég hann. Því hann bætir þau. Hann bætir Chelsea 100 prósent. Hver sem á peninginn fyrir honum, takið hann."

„Ef Liverpool keypti hann væri það upp úr þurru. Hann bætir þá og svo hugsarðu með þér, 'vá'.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner