Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliði Jong Ajax sem mætti Volendam í æfingarleik í dag.
Liðin leika bæði í næst efstu deild í Hollandi. Leiknum lauk með 4-2 sigri Volendam.
Staðan var 3-0 í hálfleik. Ajax minnkaði muninn áður en Volendam skoraði fjórða markið. Ajax náði að klóra í bakkann á 75. mínútu.
Kristian lék allan leikinn. Þetta var síðasti æfingarleikurinn en Jong Ajax mætir Den Haag á útivelli í fyrsta leik deildarinnar á sunnudaginn eftir viku.
Athugasemdir