Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   lau 31. júlí 2021 10:45
Brynjar Ingi Erluson
Ungur leikmaður Ajax lést í bílslysi
Noah Gesser var aðeins 16 ára gamall
Noah Gesser var aðeins 16 ára gamall
Mynd: Heimasíða Ajax
Noah Gesser, leikmaður Ajax í Hollandi, lést í bílslysi í gær en félagið sendi fra sér tilkynningu í dag.

Gesser var 16 ára gamall og gekk til liðs við Ajax fyrir þremur árum en hann skoraði 13 mörk fyrir U16 ára lið félagsins á síðustu leiktíð.

Ajax staðfesti í tilkynningu á heimasíðu félagsins að Gesser væri látinn eftir að hafa lent í bílslysi í Utrecht.

Tveir dóu í bílslysinu en 18 ára bróðir Gesser lést einnig eftir að hafa klesst á leigubíl. Ökumaður leigubílsins slapp ómeiddur frá slysinu.

Aðalliðið og unglinga- og varaliðið spila með sorgarbönd í dag til að heiðra minningu hans.

Athugasemdir
banner
banner
banner