Fotbolti.net
31.07.26 - 09:19
Kári Snorrason

Þrjú lið á eftir Delap - United undirbýr tilboð í Hall

Delap átti erfitt tímabil með Chelsea.

Delap átti erfitt tímabil með Chelsea.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Liam Delap eftirsóttur, Man City að landa Bouaddi og Man Utd vill styrkja raðirnar. Þetta og margt fleira í brakandi ferskum slúðurpakka á föstudegi.
Everton, Leeds United og Nottingham Forest fylgjast með framherjanum Liam Delap (23) en Chelsea metur hann á allt að 40 milljónir punda. (The i)

Manchester City er í langt komnum viðræðum við Lille um kaup á miðjumanninum Ayyoub Bouaddi (18). Arsenal, Chelsea, Liverpool og Bayern München hafa einnig sýnt Marokkómanninum áhuga. (Talksport)

Brentford er við það að ganga frá kaupum á miðjumanninum Mamadou Sangare (24) frá Lens. Malímaðurinn hefur yfirgefið æfingaferð liðsins á Ítalíu vegna félagaskiptanna. (L'Équipe)

Fulham hefur náð samkomulagi við Real Madrid um kaup á framherjanum Gonzalo García (22) og miðjumanninum César Palacios (21). Kaupverðið er samanlagt um 43 milljónir punda. (The Athletic)

Man City er með argentínska markvörðinn Gerónimo Rulli (34), leikmann Marseille, á lista sem mögulegan arftaka James Trafford. (ESPN)

Man Utd undirbýr tilboð í vinstri bakvörðinn Lewis Hall (21), leikmann Newcastle. Jorge Salinas (19) hjá Racing Santander er sömuleiðis á lista félagsins sem mögulegur valkostur. (Teamtalk)

Coventry er að ganga frá samkomulagi við Brighton um kaup á markverðinum Carl Rushworth (25), sem lék með félaginu á láni á síðasta tímabili. (Sky Sports)

Nýliðar Hull hafa átt í árangursríkum viðræðum við miðjumanninn Mert Komur (21), leikmann Augsburg. (Florian Plettenberg á X)

Umboðsmaður paragvæska landsliðsmarkvarðarins, Orlando Gill (26), segir Man Utd hafa átt í viðræðum við hann. (DSports/Metro)

Varnarmaðurinn Genesis Antwi (19) er á leið til Strasbourg á láni frá Chelsea. (Football Insider)
Bouaddi heillaði á HM.

Bouaddi heillaði á HM.

Canon

Mynd: EPA

Lewis Hall á óskalista United.

Lewis Hall á óskalista United.

Canon

Mynd: EPA

Man Utd sömuleiðis á eftir Paragvæjanum Orlando Gill.

Man Utd sömuleiðis á eftir Paragvæjanum Orlando Gill.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.