Fotbolti.net
30.07.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Opnasta titilbarátta í áraraðir framundan?

Arsenal er ríkjandi Englandsmeistari.

Arsenal er ríkjandi Englandsmeistari.

Canon

Mynd: EPA

Josef Rindl, fréttamaður BBC, spáir gríðarlega spennandi tímabili framundan í ensku úrvalsdeildinni og sér fyrir sér opnustu titilbaráttu í áraraðir.

„Eftir margra ára yfirburði Manchester City, þar sem Liverpool og Arsenal unnu síðan titla með að minnsta kosti sjö stiga mun, er kominn tími á opna og ófyrirsjáanlega titilbaráttu í ensku úrvalsdeildinni þar sem mörg lið eiga möguleika," skrifar Rindl í grein á vefsíðu BBC.

Þrjú af hinum svokölluðu 'stóru sex' félögum eru komin með nýjan stjóra, lykilmaður ríkjandi meistara er meiddur og Tottenham og Chelsea hafa farið hamförum á markaðnum.
„Manchester City er oftast talið sigurstranglegast, enda hefur liðið unnið sex af síðustu níu titlum í ensku úrvalsdeildinni, en það byrjar nýtt tímabil án besta stjóra sögu sinnar, Pep Guardiola," segir Rindl.

Enzo Maresca er tekinn við City, Xabi Alonso er nýr stjóri Chelsea og Andoni Iraola er tekinn við af Arne Slot hjá Liverpool.

„Sem ríkjandi meistarar og með reyndan stjóra er Arsenal sigurstranglegast í baráttunni um titilinn í ensku úrvalsdeildinni. Langvarandi meiðsli lykilmanns gætu þó haft áhrif á möguleika liðsins á titlinum. Félagið hefur greint frá því að varnarmaðurinn William Saliba verði frá í „talsverðan tíma“ eftir að hafa hlotið bakmeiðsli á heimsmeistaramótinu með franska landsliðinu."

„Bæði Chelsea og Tottenham voru undir væntingum á síðasta tímabili en liðin gætu rétt úr kútnum núna eftir mikil umsvif á leikmannamarkaðnum," segir Rindl í grein sinni og veltir því einnig fyrir sér hvernig Manchester United mun standa sig í auknu leikjaálagi eftir að liðið tryggði sér Meistaradeildarsæti.

Hér má lesa greinina í heild á vefsíðu BBC. Enska úrvalsdeildin fer af stað 21. ágúst.
Iraola er nýr stjóri Liverpool.

Iraola er nýr stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.