Fotbolti.net
30.07.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Staðfestir áhuga Man Utd á markverði Paragvæ

Staðfestir áhuga Man Utd á markverði Paragvæ
Canon

Mynd: EPA

Mario Jara, umboðsmaður paragvæska markvarðarins Orlando Gill, hefur staðfest áhuga Man Utd á markverðinum.

Gill var aðalmarkvörður paragvæska landsliðsins á HM þar sem liðið komst í 16 liða úrslit og tapaði gegn Frakklandi. Gill er leikmaður San Lorenzo í Argentínu.
„Við erum í viðræðum við félög á Englandi og í Þýskalandi. Það voru fyrirspurnir frá Man Utd. Við höfum bara fengið tvö raunhæf tilboð," Jara.

„Við verðum að meðhöndla þetta mjög vandlega því margt kemur til greina. Það er tilvalið fyrir hann að taka skref upp í gæðum. Hann er undirbúinn og fær um að spila í hvaða deild sem er, án efa. Hann bætti við: „Við erum að reyna að klára þetta eins fljótt og auðið er, öllum til hagsbóta. Það væri mjög mikilvægt fyrir San Lorenzo; vonandi verður þetta að veruleika.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.