Fotbolti.net
31.07.26 - 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steypustöðin

Sterkust í 13. umferð - Kvaddi með stæl

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Breiðablik)

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir .

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir .

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, sóknarmaður Breiðabliks, er sterkasti leikmaður 13. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar.

Olla Sigga fór fyrir sínu liði í mikilvægum 2-0 sigri á Þór/KA, skoraði bæði mörkin og var maður leiksins.
Sterkust í 12. umferð - Gjörsamlega ótrúleg frammistaða
TENGT EFNI

Sterkust í 12. umferð - Gjörsamlega ótrúleg frammistaða

„Setti tvö mörk og tryggði Breiðablik sigurinn í kveðjuleiknum sínum en hún heldur aftur út til Harvard í háskólaboltann. Heldur betur gott dagsverk og gott að fara með 2 mörk og sigur til USA," skrifaði Snæbjört Pálsdóttir í skýrslu sinni frá leiknum.

Olla Sigga er á leið inn í sitt síðasta ár í Harvard háskólanum í Bandaríkjunum sem er einn virtasti háskóli í heimi. Þar hefur hún stundað nám síðustu ár ásamt því að spila með skólaliðinu.

„Tilfinningarnar eru bara góðar. Ég er að fara aftur út í skólann þannig að það er gott að enda á þessu,“ sagði Olla við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Þór/KA.

Þegar hún var spurð hvort hægt hefði verið að óska sér betra handrit að kveðjuleiknum svaraði hún létt:

„Þrenna hefði kannski verið aðeins betri. Nei, en ég meina, tvö mörk í sigri.“

Hjörtur styrktarþjálfari Breiðabliks kom þá aðsvífandi og sagðist hafa beðið Ollu um tvö mörk og hún stóð við sitt.

„Ef þú hefðir beðið um þrjú þá hefði ég getað skorað þrjú.“
Olla var að spila sinn síðasta leik með Breiðabliki í sumar en hún er á leið aftur í Harvard háskólann.

Olla var að spila sinn síðasta leik með Breiðabliki í sumar en hún er á leið aftur í Harvard háskólann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Stór félög í bullandi vandræðum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.