Fotbolti.net
31.08.15 - 15:50
Magnús Már Einarsson

Draxler og Dante til Wolfsburg (Staðfest)

Julian Draxler.

Julian Draxler.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Wolfsburg hefur fengið góðan liðsstyrk á lokadegi félagaskiptagluggans í Þýskalandi.

Félagið hefur fengið miðjumanninn Julian Draxler frá Schalke og varnarmanninn Dante frá FC Bayern.
Draxler er 21 árs gamall en hann hefur ítrekað verið orðaður við Arsenal undanfarin ár.

Danter er 31 árs gamall miðvörður frá Brasilíu en hann hefur spilað með Bayern síðan árið 2012.

Wolfsburg endaði í öðru sæti í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili og ætlar að freista þess að komast upp fyrir FC Bayern í ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.