Fotbolti.net
31.08.15 - 21:02
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Isla og De Ceglie til Marseille (Staðfest) - Lamela á leiðinni

Mauricio Isla var hjá QPR á láni síðasta tímabil.

Mauricio Isla var hjá QPR á láni síðasta tímabil.

Canon

Mynd: Getty Images

Franska félagið Olympique Marseille hefur heldur betur látið til skarar skríða á lokadegi félagsskiptagluggans.

Búið er að stafeðsta komu Paolo De Ceglie og Mauricio Isla á lánssamningum út tímabilið og auk þeirra er Erik Lamela er á leið til félagsins á láni frá Tottenham.
Paolo De Ceglie er vinstri bakvörður á meðan Mauricio Isla er hægri bakvörður.

De Ceglie á 100 deildarleiki að baki fyrir Juventus sen samanlagt eiga þeir yfir 250 efstudeildarleiki að baki í ítalska boltanum.

Samkvæmt Sky þá tókst Marseille ekki að fá Lamela á láni í tæka tíð og verður Argentínumaðurinn því áfram hjá Tottenham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.