Cristiano Ronaldo er formlega orðinn leikmaður Manchester United á nýjan leik eftir tólf ára fjarveru.
„Þetta er eins og draumur að rætast, eftir öll þau skiptin sem ég sneri til baka til að spila gegn Man. United, og jafnvel sem andstæðingur, að hafa fundið fyrir ástinni og virðingunni frá stuðningsmönnum í stúkunni," skrifar Ronaldo meðal annars á Instagram í færslu til stuðningsmanna.

„Sagan hefur verið skrifuð og hún verður skrifuð aftur. Ég legg orð mitt að veði. Ég er mættur aftur þar sem ég á að vera!" skrifar Ronaldo og bætir svo við.
„PS - Sir Alex, þessi er fyrir þig."
Kveðju Ronaldo má sjá í heild sinni að neðan. Hann gekk í raðir United á föstudag eftir að hann gaf það til kynna að hann vildi yfirgefa Juventus.
Í upphafi stefndi flest til að hann færi til Manchester City en ekkert varð svo úr því og heimkoma til Manchester United varð raunin.
Slúðursaga sem hefur heyrst er að Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóri Ronaldo hjá United, hafi hringt í Portúgalann og sannfært hann.
Cristiano Ronaldo on Instagram 🙌
— SPORTbible (@sportbible) August 31, 2021
"PS - Sir Alex, this one is for you..." 😍 pic.twitter.com/rqwdM0TX8O
Athugasemdir