31.12.14 - 22:20
Magnús Már Einarsson
Lampard klárar tímabilið með Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur framlengt lánssamning Frank Lampard út tímabilið.
Lampard yfirgaf Chelsea síðastliðið sumar og gekk í raðir New York City.
Í ágúst gekk hann til liðs við Manchester City á láni en sá lánssamningur átti að renna út nú um áramótin.

Lampard hefur komið sterkur inn í lið City á tímabilinu og nú er ljóst að hann verður hjá félaginu fram á sumar.
Hinn 36 ára gamli Lampard getur því verið í eldlínunni þegar Manchester City mætir Sunderland á morgun.