Mest lesnu fréttir ársins á Fótbolta.net

Tvö viðtöl við Ólaf Karl Finsen vöktu mikla athygli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Diego Costa sló Gylfa.

Mynd: Getty Images

Kassim Doumbia trylltist eftir tap FH gegn Stjörnunni í lokaumferðinni. Hann var síðar dæmdur í fjögurra leikja bann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Freyr Sigurðsson var í viðtali fyrir Pepsi-deildina þar sem hann talaði meðal annars um bróðurmissinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Moyes var rekinn í apríl.

Mynd: Getty Images

Tvö viðtöl við Ólaf Karl Finsen vöktu mikla athygli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net hefur á árinu birt um 21 þúsund fréttir. Við höldum til haga hjá okkur upplýsingum um þær fréttir sem mest eru skoðaðar á árinu og í tilefni af því að árinu er að ljúka birtum við hér að neðan lista yfir þær 30 fréttir sem voru mest lesnar á árinu.
Dags: 22 janúar
Í janúar birti Fótbolti.net myndband úr leik KV og Fylkis í Reykjavíkurmótinu en það vakti mikla athygli. Vilhjálmur Darri Einarsson var tekinn af velli í fyrri hálfleik eftir rifrildi við Pál Kristjánsson þjálfara KV. Vilhjálmur Darri brást reiður við og kallaði Pál við þetta sauðnaut og skammaðist enn frekar í honum, sagði honum að hoppa upp í rassgatið á sér og fokka sér og bætti á endanum við að hann væri fokking mongólíti. Vilhjálmur Darri spilaði ekki fleiri leiki fyrir KV eftir þetta en hann baðst afsökunar á framkomu sinni daginn eftir, sagðist dauðskammast sín vonast til að verða fyrirgefið.
2. Frá óreglu í Íslandsmeistaratitil á einu ári
Dags: 9. október
Ólafur Karl Finsen var hetja Stjörnumanna þegar hann skoraði bæði mörk liðsins gegn FH í lokaumferð Pepsi-deildarinnar og tryggði Garðbæingum Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti. Nokkrum dögum eftir leikinn var Ólafur Karl í einlægu viðtali á Fótbolta.net sem vakti mikla athygli. Eftir tímabilið 2013 var Ólafur Karl í óreglu og uppeldisfélagið ætlaði að losa sig við hann. Ólafur Karl náði að snúa blaðinu við svo um munaði en hann lýsti ferlinu í viðtalinu á Fótbolta.net.
3. Balotelli svaraði íslenskri stelpu á Instagram
Dags: 28. ágúst
Íslendingar eru virkir á hinum ýmsu samskiptamiðlum og ýmislegt þaðan ratar í fréttirnar. Hin 17 ára gamla Elín Ísold Pálsdóttir sendi Mario Balotelli mynd í einkaskilaboðum í gegnum Instagram og framherji Liverpool svaraði.
4. Vine-myndband: Diego Costa sló Gylfa
Dags: 14. september
Diego Costa stimplaði sig af krafti inn í enska boltann í byrjun tímabils. Costa skoraði mikið en hann komst einnig í fréttirnar þgar hann sló Gylfa Þór Sigurðsson í leik Chelsea og Swansea í september. Costa var eitthvað illa fyrir kallaður þegar Chelsea átti aukaspyrnu í fyrri hálfleik en hann sló þá Gylfa.
5. Ólafur Karl Finsen: Vidic er fokking leiðinlegur
Dags: 21. ágúst
Ólafur Karl vakti einnig athygli í viðtali eftir leik Stjörnunnar og Inter á Laugardalsvelli í ágúst. Ólafur Karl lét þá Nemanja Vidic varnarmann heyra það. Þeir fóru báðir lyfjapróf eftir leikinn en þar reyndi Ólafur Karl að taka Snpachat myndband af Vidic. „Hann var brjálaður. Hann er fokking leiðinlegur. Ég hélt að hann hefði húmor fyrir þessu en við fórum aðeins að rífast. Hann er drepleiðinlegur,\" sagði Ólafur Karl en hann og Vidic áttu síðan eftir að grafa stríðsöxina eftir síðari leikinn á Ítalíu.
6. Fluttur með þyrlu eftir árás í leik á Hellissandi
7. Myndir: Kassim Doumbia ætlaði að vaða í dómaratríóið
8. Cillessen rauk úr viðtali: Ég ætla ekki að svara þessu
9. „Leikmenn Man Utd skilja ekki þetta kerfi\"
10. Mynd: Wenger óslasaður eftir fall í Liverpool
11. Wilshere fótbrotinn eftir tæklingu Agger
12. Faðir Giggs: Ég myndi ekki treysta Ryan fyrir því að láta renna í bað
13. Umtalaðasta íþróttamynd ársins - Ronaldo huggaði Messi
14. Stuðningsmaður FH mikið slasaður
15. Steven Lennon: Er ekki að fara að sleppa kynlífi í tíu daga
16. „Hann sagði við mig að hann vildi deyja“
17. Jón Daði: Fátækt ekkert til að skammast sín fyrir
18. Íslenska landsliðið komið í nýja treyju - Svipar til Sampdoria
19. Hótaði Einar Orri að skera Böðvar á háls?
20. David Moyes rekinn frá Manchester United (Staðfest)
21. Myndir: Ungfrú heimur og Davíð Þór gengu saman inn á völl
22. Neymar ekki meira með á HM
23. Moyes við leikmenn: Þið spilið eins og stelpur
24. Topp tíu - Verstu kaup Sir Alex Ferguson
25. Star: Uppreisnarseggirnir í Man Utd látnir fara í sumar
26. Höddi Magg hættur á Twitter - ,,Nú er einfaldlega nóg komið\"
27. Túlkurinn olli hláturskasti á blaðamannafundi Íslands
28. Hermann Hreiðarsson í Fylki (Staðfest)
29. Twitter - Joey Barton lofsamar Ísland
30. Venni sPáer í leiki helgarinnar

Diego Costa sló Gylfa.

Mynd: Getty Images

Kassim Doumbia trylltist eftir tap FH gegn Stjörnunni í lokaumferðinni. Hann var síðar dæmdur í fjögurra leikja bann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Freyr Sigurðsson var í viðtali fyrir Pepsi-deildina þar sem hann talaði meðal annars um bróðurmissinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Moyes var rekinn í apríl.

Mynd: Getty Images
