Huh Huh Huh!
Matvöruverslanir Iceland hafa notað þátttöku Íslands á EM í markaðssetningu og haldið með landsliði okkar á mótinu.
Iceland verslanirnar njóta mikilla vinsælda í Englandi, en Ísland sló einmitt England út í 16-liða úrslitunum á EM.
Þrátt fyrir að Ísland hafi slegið England þá eru starfsmenn Iceland ekkert fúlir.
Ísland mætir Frakklandi í 8-liða úrslitunum á morgun og starfsmenn Iceland eru komnir í gírinn eins og sjá má meðfylgjandi myndbandi.
Þar taka þeir Víkingafagnið svokallaða, en það hefur vakið mikla lukku á EM í Frakklandi.
Gríðarlega skemmtilegt myndband, en það má sjá eins og áður segir hér að neðan.
HOOH! Can you guess HOOH we’re all getting behind tomorrow? @FootballIceland #ComeOnIceland #FRAISLhttps://t.co/D3Q0UUHGee
— Iceland Foods (@IcelandFoods) July 2, 2016
Athugasemdir