Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fös 24. febrúar 2017 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Medel ætlar að hvetja Sanchez að fara til Inter
Sanchez hefur verið besti leikmaður Arsenal á tímabilinu.
Sanchez hefur verið besti leikmaður Arsenal á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Gary Medel er greinilega ánægður með lífið hjá Inter á Ítalíu. Hann hvetur landa sinn, Alexis Sanchez, að íhuga það að fara frá Arsenal og yfir til Inter.

Framtíð Sanchez er óljós, en samningaviðræður Arsenal við hann hafa gengið illa. Það eru mörg lið sem hafa áhuga á honum, en Medel vill sjá hann fara til Inter.

„Alexis er leikmaður sem allir þekkja. Hann er einn af þessum sóknarmönnum sem öll stóru liðin fylgjast með," sagði Medel í viðtali við Corriere dello Sport.

„Ég veit ekki hver framtíð hans verður, en ef hann biður um upplýsingar um Inter, þá segi ég honum að við séum með góðan hóp hérna, mjög góðan þjálfara og stjórnarmenn sem vilja ekkert heitar en góðan árangur. Þú munt ekki finna verkefni eins og þetta annars staðar."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner