Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 08. janúar 2018 12:30
Magnús Már Einarsson
Svona eyddi Liverpool peningnum fyrir Suarez
Suarez og Coutinho voru báðir seldir til Barcelona á háa fjárhæð.
Suarez og Coutinho voru báðir seldir til Barcelona á háa fjárhæð.
Mynd: Getty Images
Þegar Barcelona keypti Luis Suarez frá Liverpool á 75 milljónir punda sumarið 2014 brást Liverpool við með því að fá níu nýja leikmenn til félagsins á samtals 119 milljónir punda.

Liverpool hefur nú selt Philippe Coutinho til Barcelona á 142 milljónir punda og stuðningsmenn félagsins bíða spenntir að sjá hvaða leikmaður á að fylla skarð hans.

Liverpool bætti Virgil van Dijk við vörnina á 75 milljónir punda í síðustu viku en ekki er ólíklegt að Jurgen Klopp reyni að fá annan leikmann til félagsins á næstunni.

Hér að neðan má sjá leikmennina sem Liverpool keypti fyrir Suarez peninginn árið 2014.

Kaup Liverpool árið 2014
Adam Lallana á 25 milljónir punda - 130 leikir með Liverpool
Dejan Lovren á 20 milljónir punda - 133 leikir með Liverpool
Lazar Markovis á 20 milljónir punda - 34 leikir með Liverpool
Mario Balotelli á 16 milljónir punda - 28 leikir með Liverpool
Alberto Moreno á 12 milljónir punda - 129 leikir með Liverpool
Divock Origi á 10 milljónir punda - 77 leikir með Liverpool
Emre Can á 10,5 milljónir punda - 155 leikir með Liverpool
Rickie Lambert á 4,5 milljónir punda - 36 leikir með Liverpool
Javier Manquillo á láni - 19 leikir með Liverpool
Athugasemdir
banner
banner
banner