Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   mán 15. janúar 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Lambert tekinn við Stoke (Staðfest)
Lambert var stjóri Aston Villa frá 2012 til 2015.
Lambert var stjóri Aston Villa frá 2012 til 2015.
Mynd: Getty Images
Paul Lambert hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri Stoke í ensku úrvalsdeildinni. Lambert tekur við af Mark Hughes sem var rekinn á dögunum eftir dapurt gengi.

Martin O'Neill, landsliðsþjálfari Íra, og Quique Sanchez Flores, þjálfari Espanyol, höfðu báðir hafnað Stoke áður en Lambert tók við stöðunni.

Hinn 48 ára gamli Lambert gerir tveggja og hálfs árs samning hjá Stoke en hann á að reyna að rífa liðið úr fallbaráttunni.

Lambert var síðast stjóri Wolves en hann hætti hjá félaginu síðastliðið vor. Áður hafði Lambert meðal annars stýrt Norwich, Aston Villa og Blackburn.

Stoke heimsækir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lambert horfir á þann leik úr stúkunni áður en hann tekur formlega við sem stjóri á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 25 5 5 85 28 +57 80
2 Man City 34 24 7 3 82 32 +50 79
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 33 18 6 9 67 52 +15 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 33 13 9 11 63 59 +4 48
10 Bournemouth 35 13 9 13 52 60 -8 48
11 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
12 Brighton 34 11 11 12 52 57 -5 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 35 12 8 15 37 48 -11 36
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 35 7 9 19 42 62 -20 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner