Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fös 18. maí 2018 20:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Völdu leikmenn sem Klopp á að hugsa um að kaupa í sumar
Hvaða leikmenn mun Klopp kaupa í sumar?
Hvaða leikmenn mun Klopp kaupa í sumar?
Mynd: Getty Images
Tímabilinu fer senn að ljúka og þá tekur HM við, og jú félagaskiptamarkaðurinn.

Liverpool er komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og mætir þar Real Madrid í Kænugarði um næstu helgi. Einbeiting Jurgen Klopp, stjóra Liverpool, er á þeim leik, en eftir að honum er lokið fara spjótin að beinast að markaðnum.

Hvaða leikmenn á Klopp kaupa í sumar?

Staðarmiðillinn Liverpool Echo ákvað að skoða málið og fékk fjóra af blaðamönnum sínum til að nefna einn leikmann sem myndi styrkja nú þegar mjög sterkt lið Liverpool. Mirror gerði frétt um málið og bætti við einum leikmanni. Athyglisvert er að þrír af blaðamönnum Echo völdu sóknarsinnaðan leikmann og var pælingin á bak við það að auka þyrfti breiddina. Blamaður Mirror valdi líka sóknarsinnaðan leikmann.

Hér að neðan má sjá hvaða leikmenn voru fyrir valinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner