Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 18. nóvember 2017 19:54
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Þýskaland: Mönchengladbach tók stigin þrjú í sex markaleik
Raffael setti tvö í dag.
Raffael setti tvö í dag.
Mynd: Getty Images
Hertha 2 - 4 Borussia M.
0-1 Lars Stindl ('5 )
0-2 Thorgan Hazard ('14 , víti)
0-3 Raffael ('20 )
1-3 Vedad Ibisevic ('28 )
2-3 Mitchell Weiser ('71 )
2-4 Raffael ('77 )

Það vantaði ekki mörkin í lokaleik dagsins í þýsku Bundesligunni þar sem Hertha Berlin fékk Borussia Mönchengladbach í heimsókn.

Leikurinn var aðeins fimm mínútna gamall þegar Lars Stindl kom gestunum yfir, það leið svo ekki langur tími þar til staðan var orðin 0-2. Thorgan Hazard skoraði þá úr vítaspyrnu.

Sex mínútum eftir að staðan var orðin 0-2, skoraði Raffael þriðja mark gestanna. Heimamönnum tókst þó að minnka muninn í fyrri hálfleik en þá kom Vedad Ibisevic boltanum í netið.

Fyrsta mark seinni hálfleiks lét ekki sjá sig fyrr en á 71. mínútu, þá minnkaði Mitchell Weiser muninn í eitt mark, staðan var svo orðin 2-4 sex mínútum seinna. Þá skoraði Raffael annað markið sitt í leiknum og lokamark leiksins.

Borussia Mönchengladbach fór með sigrinum í þriðja sæti þýsku Bundesligunnar.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 31 25 6 0 77 22 +55 81
2 Bayern 32 22 3 7 90 41 +49 69
3 Stuttgart 32 21 4 7 73 39 +34 67
4 RB Leipzig 32 19 6 7 74 36 +38 63
5 Dortmund 32 17 9 6 64 40 +24 60
6 Eintracht Frankfurt 31 11 12 8 47 42 +5 45
7 Freiburg 32 11 8 13 43 55 -12 41
8 Hoffenheim 32 11 7 14 56 64 -8 40
9 Augsburg 32 10 9 13 49 57 -8 39
10 Werder 32 10 8 14 43 52 -9 38
11 Heidenheim 31 9 10 12 44 52 -8 37
12 Wolfsburg 32 10 7 15 40 51 -11 37
13 Gladbach 32 7 12 13 55 62 -7 33
14 Union Berlin 31 8 6 17 26 50 -24 30
15 Bochum 31 6 12 13 37 62 -25 30
16 Mainz 31 5 13 13 32 49 -17 28
17 Köln 32 4 12 16 24 54 -30 24
18 Darmstadt 32 3 8 21 30 76 -46 17
Athugasemdir
banner
banner
banner