Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fim 24. apríl 2014 17:30
Elvar Geir Magnússon
Roberto Martinez: Moyes fær starf fljótlega
Roberto Martinez og David Moyes.
Roberto Martinez og David Moyes.
Mynd: Getty Images
Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton, telur að David Moyes fái starf fljótlega en Skotinn var rekinn frá Manchester United í upphafi vikunnar.

„Ég er viss um að hann verði tilbúinn að taka að sér nýtt starf og er viss um að hann muni fá fullt af tilboðum," segir Martinez

„Við vitum að Moyes hlakkar til næsta kafla á sínum ferli og mun öðlast enn meiri reynslu. Hann hefur náð miklum árangri á ferlinum þrátt fyrir að þetta hafi ekki gengið upp hjá Manchester United."

„Ég er viss um að hann eigi enn eftir að afreka margt og er reynslunni ríkari."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner