Það verður mikið húllumhæ í verslun Jóa útherja í dag þar sem sumrinu verður fagnað sem og 25 ára afmæli verslunarinnar.
Boðið verður upp á muffins og drykki á meðan byrgðir endast fyrir gesti sem kíkja við í verslunina.
Verslunin er full af nýjum vörum og tilvalið að kíkja með fótboltaáhugamanninn og finna góða sumargjöf.
Opið er á milli 10:00 og 16:00 í versluninni, Ármúla 36 þar sem veitingarnar verða á boðstólum.
Þá verður einnig opið í Bæjarhrauni í Hafnarfirði frá 11:00 - 15:00.
Þau sem ekki komast geta kíkt við og pantað á JoiUtherji.is og fengið sent um hæl.
Athugasemdir