Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 26. febrúar 2017 15:00
Kristófer Kristjánsson
Carlo Ancelotti með 1000 leiki á ferlinum
Carlo Ancelotti er einn sigursælasti þjálfari heims
Carlo Ancelotti er einn sigursælasti þjálfari heims
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Bayern, náði mögnuðum áfanga um helgina þegar hann stýrði sínum þúsundasta leik sem aðal þjálfari knattspyrnuliðs.

Það var glæsibragur yfir þessum tímamóta leik Ítalans en Bayern gjörsigraði Hamburg, 8-0.

Ancelotti vann meistaradeildina tvívegis með AC Milan og svo aftur með Real Madrid sumarið 2014. Hann varð einnig Englands- og bikarmeistari hjá Chelsea ásamt því að vinna frönsku úrvalsdeildina með PSG árið 2013.

Ancelotti hefur unnið 591 leik af þessum 1000, sem þýðir að hann er með magnað sigurhlutfall eða 59%.

Að sjálfsögðu var þessu öllu saman fagnað með saltkringlu, en ekki hvað.



Athugasemdir
banner
banner