Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fös 29. maí 2015 18:30
Stefán Haukur
Özil: Öll lið ættu að hræðast Arsenal
Özil er tilbúinn í leikinn gegn Aston Villa
Özil er tilbúinn í leikinn gegn Aston Villa
Mynd: EPA
Mesut Ӧzil, leikmaður Arsenal segir að öll lið ættu að vera hrædd við að mæta Arsenal. Hann segir þó að liðið þurfi að vara sig á að fara ekki með of mikið sjálfstraust inn í leikinn gegn Aston Villa í úrslitum FA-bikarsins.

„Við erum taldir sigurstranglegri en við megum ekki vera of sigurvissir,“ sagði Ӧzil á blaðamannafundi.

„Ég veit að leikir á móti minni liðum geta verið erfiðir vegna þess að þau gefast aldrei upp en ég veit líka að Aston Villa mega vera mjög hræddir því að við spilum góðan fótbolta. Þetta verður erfiður leikur.“

Özil hefur verið að glíma við meiðsli á þessu tímabili en hann hefur þó stimplað sig ágætlega inn í síðari hluta tímabilsins.

„Það væri gott fyrir líkamann að fá langa hvíld en ég held ég þurfi hana ekki ef ég á að vera hreinskilinn,“ sagði Özil.

„Það er gott að fá nokkra daga í hvíld en mig langar alltaf að spila fótbolta.“
Athugasemdir
banner
banner
banner