Louis van Gaal, stjóri Manchester United, segir að það verði erfitt að svíkja loforð um að hætta sem stjóri liðsins árið 2017.
Van Gaal er með samning við Manchester United til sumarsins 2017 en þá ætlar hann að setjast í helgan stein.
„Ég ætti að hætta eftir næsta tímabil ef allt er eðlilegt en maður veit aldrei hvað er eðlilegt í fótboltaheiminum," sagði van Gaal.

„Ég er búinn að lofa konunni minni að fara í paradísina okkar í Portúgal."
„Það verður mjög erfitt að neita henni um það loforð. Það yrði mjög erfitt gagnvart konunni minni."
Athugasemdir