Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
Besta-deild kvenna
Þróttur R.
LL 2
0
Þór/KA
Besta-deild kvenna
Fram
LL 3
1
Stjarnan
Besta-deild kvenna
Breiðablik
LL 6
0
FHL
Besta-deild kvenna
Víkingur R.
LL 1
4
FH
Skotland
1
3
Ísland
0-1 Andri Lucas Guðjohnsen '8
John Souttar '25 1-1
Lewis Ferguson '45 , sjálfsmark 1-2
1-3 Guðlaugur Victor Pálsson '52
06.06.2025  -  18:45
Hampden Park
Vináttulandsleikur
Aðstæður: Framúrskarandi
Dómari: Granit Maqedonci
Byrjunarlið:
1. Angus Gunn (m) ('7)
3. Andy Robertson
4. Scott McTominay ('79)
5. Grant Hanley ('68)
6. Kieran Tierney ('68)
7. John McGinn
8. Billy Gilmour
9. George Hirst ('68)
15. John Souttar
19. Lewis Ferguson
22. Max Johnston ('79)

Varamenn:
12. Robby McCrorie (m)
21. Cieran Slicker (m) ('7)
2. Anthony Ralston
10. Ché Adams ('68)
11. Tommy Conway ('79)
13. Jack Hendry
14. Lennon Miller ('68)
16. Scott McKenna ('68)
17. Andrew Irving
18. James Wilson
20. Connor Barron
23. Josh Doig
24. Nathan Patterson ('79)
25. Kieron Bowie

Liðsstjórn:
Steve Clark (Þ)

Gul spjöld:
John McGinn ('51)
Lennon Miller ('88)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Frábær frammistaða hjá Íslandi í dag. Ég myndi líkja frammistöðunni við dementors úr Harry Potter, þið vitið sem vitið. Ísland saug bara lífsgleðina úr Skotum í dag. Skoruðu þrjú mjög góð mörk, héldu vel í boltann og vörðust virkilega vel.

Fyrsti sigur Arnars Gunnlaugssonar sem landsliðsþjálfari, þetta gæti verið merki um bjarta framtíð!
91. mín
Uppbótartíminn þrjár mínútur. Þessi spyrna á nær og aftur skalla Íslendingar frá.
90. mín
Che Adams svo í fínu færi en skotið hans af Daníel og þeir fá aðra hornspyrnu.
90. mín
Fyrirgjöf hjá Skotum og íslenska vörnin sér við þessu, en þeir fá horn.

Boltinn úr hornspyrnunni kemur á fjær en Ísland hreinsar.
89. mín
Völlurinn á Hampden Park er víst að tæmast. Skil það bara vel, ég myndi ekki nenna þessu ef ég væri Skoti.
88. mín Gult spjald: Lennon Miller (Skotland)
87. mín
Robertson með boltann á McGinn sem er við vítateigslínuna. Hann reynir af einhverri ástæðu að vippa yfir Elías. Maður leiksins af mínu mati, ekki í neinum vandræðum með þetta.
86. mín
Tek ekkert af frammistöðu íslenska landsliðsins, en þetta skoska lið er búið að vera ÖMURLEGT! Þeir virðast bara ekki nenna þessu.
83. mín
Mér sýnist þessi leikur ætla bara fjara út. Það er nákvæmlega ekkert í gangi. Íslenska liðið bara mjög sátt með stöðuna og andleysið í Skotunum svo ótrúlega mikið.
80. mín
Skotar í fínni sókn rétt fyrir þessar skiptingar en íslenska vörnin sá vel um þetta. Daníel Leó með alveg hörku tæklingu á McTominay í uppbyggingunni og hann haltrar af velli.
79. mín
Inn:Nathan Patterson (Skotland) Út: Max Johnston (Skotland)
79. mín
Inn:Tommy Conway (Skotland) Út: Scott McTominay (Skotland)
77. mín
Inn:Aron Einar Gunnarsson (Ísland) Út:Sverrir Ingi Ingason (Ísland)
76. mín
Æjæjæj Sverrir liggur og heldur um lærið. Aron er að koma inná. Ég taldi víst vitlaust áðan, Ísland á enn skiptingar eftir.
74. mín
Mér finnst Skotar eiginlega bara hálf andlausir síðustu mínúturnar. Eru að komast nálægt teignum en svo bara nenna þeir varla að búa sér til alvöru færi.
72. mín
Inn:Arnór Ingvi Traustason (Ísland) Út:Ísak Bergmann Jóhannesson (Ísland)
Síðustu breytingar Arnars í þessum leik.
72. mín
Inn:Mikael Anderson (Ísland) Út:Stefán Teitur Þórðarson (Ísland)
72. mín
Inn:Willum Þór Willumsson (Ísland) Út:Jón Dagur Þorsteinsson (Ísland)
72. mín
Maz Johnston reynir skotið fyrir utan teig, langt framhjá. Í takt við hans frammistöðu í þessum leik.
71. mín
Skoskur stuðningsmaður Víkings virðist bara frekar ánægður
69. mín Gult spjald: Jón Dagur Þorsteinsson (Ísland)
Pirrings spjald hjá Jóni Degi, ýtir við Robertson eftir að Jón missir boltann útaf í innkast.
68. mín
Inn: Scott McKenna (Skotland) Út:Grant Hanley (Skotland)
Þreföld hjá skotum, það á að reyna að keyra á þetta í lokin.
68. mín
Inn: Lennon Miller (Skotland) Út: Kieran Tierney (Skotland)
Miller fæddur 2006, mjög efnilegur leikmaður.
68. mín
Inn:Ché Adams (Skotland) Út: George Hirst (Skotland)
67. mín
Sverrir að bjarga málunum! Robertson fer alveg svakalega með menn á vinstri kantinum. Tekur út tvo varnarmenn í einni hreyfingu og keyrir inn á teiginn. Sverrir hinsvegar vel á varðbergi, kemur á móti honum og stoppar skotið hans.
64. mín
Aðal maður Tólfunnar er kominn með lag kvöldsins
62. mín
Skotar minnka muninn Þetta er alveg greinileg rangstaða!

Góð sending inn fyrir en McTominay er í rangstöðu. Hirst klárar vel en VAR herbegið með þetta á hreinu.
60. mín
Inn:Dagur Dan Þórhallsson (Ísland) Út:Guðlaugur Victor Pálsson (Ísland)
Markaskorarinn fer af velli og Dagur sem spilar fyrir Orlando City í Bandaríkjunum kemur inná.
58. mín
Slicker orðinn íslensk þjóðhetja?
57. mín
ELÍAS!!!! Johnston kominn upp kantinn hægra meginn og hann með góða fyrirgjöf. Hirst nær skallanum, mjög góður skalli niður í hornið en Elías Rafn fer niður eins og köttur og ver þetta frá honum.

Frábær markvarsla.
55. mín
Hanley af einhverri ástæðu kominn bara upp á topp. Hann kemst í gott færi og tekur skotið en Elías ver þetta frá honum.

Rikki G rosalegur í lýsingunni hjá Stöð 2 Sport, segir: Slicker hefði ekki varið þetta.
52. mín MARK!
Guðlaugur Victor Pálsson (Ísland)
Stoðsending: Albert Guðmundsson
ÞESSI SKALLI!!!!!!! Albert með frábæra spyrnu, fastan bolta inn í teig og skallinn hjá Guðlaugi ógeðslega fastur!

Þetta fer reyndar bara beint á Slicker, en sá er slakur markvörður. Boltinn lekur bara í gegnum hendurnar á honum.

VAR tékk fyrir rangstöðu.

Markið stendur!!!
51. mín Gult spjald: John McGinn (Skotland)
McGinn pirraður og eftir að hann brýtur á Ísaki þá sparkar hann boltanum í hann.
51. mín
Fer rólega af stað Ekki mikið gerst þessar fyrstu mínútur, en Ísland fær aukaspyrnu á fínum stað fyrir fyrirgjöf.
47. mín
John McGinn búinn að spila svona 30 sekúndur af þessum seinni hálfleik og hann meiðist eitthvað. Hann virðist samt ætla að halda áfram leik.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Ein breyting í hálfleik, líkast til ákveðið fyrir fram.
46. mín
Inn:Daníel Leó Grétarsson (Ísland) Út:Hörður Björgvin Magnússon (Ísland)
45. mín
Hann hefur ekki átt neitt sérlega góða innkomu
45. mín
Hálfleikur
Prýðis góður hálfleikur hjá íslenska liðinu. Byrjuðum leikinn mjög vel og Andri skoraði frábært mark. Skotarnir bættu sig aðeins og náðu að jafna leikinn, en Ísland kom svo vel til baka og markið okkar kannski smá heppni en heilt yfir myndi ég segja að við eigum skilið að vera yfir.

Meira af því sama í seinni segi ég bara takk fyrir!
45. mín
Hampden baular! Um leið og dómarinn flautaði til hálfleiks heyrðist hressilegt baul á Hampden Park.
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Daníel Leó er búinn að vera duglegur í upphitun við hliðarlínuna með styrktarþjálfaranum. Kæmi mér ekki á óvart ef hann kæmi inn fyrir Hörð Björgvin í hálfleik.
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Það var bara bætt fjórum mínútum við Kemur aðeins á óvart þar sem það tók minnsta kosti fjórar mínútur þegar Gunn meiddist.
45. mín SJÁLFSMARK!
Lewis Ferguson (Skotland)
Stoðsending: Albert Guðmundsson
Frábær tími til að skora!!! Markið fyrst skráð á Jón Dag en boltinn kominn lengst yfir línuna þegar hann skýtur.

Albert tekur hornspyrnuna. Lyftir boltanum í þvöguna og boltinn skoppar af Souttar og svo af Ferguson, áður en hann lekur bara í netið. Slicker á líkast til að taka þetta en þarna vorum við með heppnina með okkur.

2-1 Ísland rétt fyrir hálfleik!
44. mín
Ísland fær horn Fyrsta hornspyrnan okkar. Albert ætlar að taka.
42. mín
Ferguson með skotið McTominay með flotta takta inn í teig en Ísland verst vel. Lewis Ferguson nær svo til boltans og tekur skotið í varnarmann og aftur fyrir.

Skotar fá þá horn sem þeir lyfta aftur á fjærstöngina. Hanley nær skallanum en hann klifrar full mikið yfir Mikael Egil í leiðinni og Ísland fær aukaspyrnu.
41. mín
Mikael rennur! Stórkostleg sending hjá Herði Björgvin fram þar sem Mikael Egill var kominn í frábæra stöðu. Hann tekur vel á móti boltanum en svo rennur hann og Skotarnir ná til boltans.

Ef hann hefði ekki runnið hefði hann og Jón Dagur verið tveir á einn.
37. mín
Elías öruggur í fyrirgjöfum Skotarnir í álitlegri sókn, Max Johnston með fyrirgjöfina en Elías grípur hana bara. Svo dettur hann inn í markið með boltann í höndunum en það var greinilega ýtt í hann og hann fær aukaspyrnuna.
35. mín
Ísland að reyna að spila sig úr pressu, náðum að halda boltanum vel en Skotarnir pressuðu okkur alla leið niður. Þetta var svo leyst á endanum með löngum bolta upp á Andra sem gerði vel í að ná í aukaspyrnuna.

Engin hræðsla í uppspilinu hjá íslensku varnarmönnunum, þetta er greinilega eitthvað sem Arnar vill.
34. mín
Mjög rólegt yfir leiknum síðan Skotar jöfnuðu. Íslenska liðið ekki að ná að skapa sér neitt.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Hrikalega farið með gott færi Kieran Tierny með góðan bolta á fjær þar sem Max Johnston er aleinn, enginn íslenskur varnarmaður að pæla í honum. Hann er þá bara einn gegn markmanni en hann hittir boltann hrikalega illa og Elías nær að eiga við þetta.
28. mín
Skotar voru búnir að sýna betri takta fram að markinu, nú þarf Ísland að taka stjórnina á leiknum eins og við vorum með fyrstu 15-20 mínúturnar.
25. mín MARK!
John Souttar (Skotland)
Skotar jafna! Þetta var aaaaalgjör óþarfi!!!!

Skotar með góða sókn þar sem þeir leggja boltann inn fyrir á Mctominay, hann mögulega rangstæður þar en ekkert dæmt. Hann leggur þá boltann á Hirst sem á frábært skot en Elías ver stórkostlega. Horn.

Skotarnir taka hornið, lyfta boltanum inn í teiginn þar sem Souttar er bara svo miklu sterkari en Hörður Björgvin, ýtir honum frá sér og er þá með allt pláss í heiminum til að stanga þennan í netið.
24. mín
Fast skot hjá Jóni Degi Jón með boltann úti hægra meginn. Hann tekur snögg hreyfing og býr sér til pláss framhjá Robertson og tekur skotið. Það fer beint á Slicker, hann reyndar í smá vandræðum og missir fyrst boltann en nær á endanum að handsama hann.
21. mín
Dauðafæri fyrir Skota!! Hrikaleg sending hjá Ísak Bergmann. Hann er inn í eigin vítateig, en sendingin hans fer á John McGinn. Hann kemur þá með fyrirgjöfina beint á kollinn á Hirst sem á bara að skora þarna en skallinn hans yfir markið!

Þarna vorum við heppin!
19. mín
Elías öruggur Skotar með aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Íslands. Þeir lyfta boltanum inn í teiginn og Elías fær fyrsta verkefni leiksins. Hann kemur út úr markinu og grípur þennan.

Menn voru aðeins að tala um hann fyrir leik í útsendingu Stöðvar 2.
16. mín
McTominay að sýna gæði Frábær þversending hjá Napoli manninum yfir á Max Johnston sem reyndar fer svo bara mjög illa með þetta, af bringu hans og aftur fyrir.
15. mín
Skotar mjög ósáttir með byrjun leiksins Það má finna mikinn pirring á Hampden eftir þessa erfiðu byrjun skoska liðsins. Fyrir leik var verið að spjalla við vallargesti sem nær allir spáðu öruggum sigri Skotlands. Hér við hlið mér í fréttamannastúkunni eru starfsmenn skoska sambandsins og þeir baða út höndum. Ísland verið miklu betra liðið hér í upphafi.
Elvar Geir Magnússon
13. mín
Jón Dagur með skotið! Hákon með frábæra pressu, vinnur boltann ofarlega á vellinum og leggur hann á Jón. Hann tekur skotið sem fer í varnarmann. Hákon nær svo aftur til boltans og reynir fyrirgjöf en heimamenn ná að skalla það frá.
12. mín
Íslenska liðið að byrja þennan leik töluvert betur! Erum að pressa hátt og Skotarnir í vandræðum með það.

Aftur er Slicker að gefa boltann beint á Stefán Teit sem leggur núna boltann á Albert sem er í ágætri stöðu en í þetta skipti ná Skotarnir að stöðva hann.
10. mín
Markvarðakrísa hjá Skotlandi Í aðdraganda leiksins hefur skoska pressan fjallað töluvert um markvarðamál Skotlands en það er ekki um auðugan garð að gresja hjá heimamönnum í þeim málum. Angus Gunn hefur fengið talsverða gagnrýni og er án félags um þessar mundir. Slicker sem nú er mættur í rammann er varamarkvörður hjá Ipswich. Skoskir sparkspekingar hreinlega vita ekki hver eigi að eigna sér þessa stöðu.
Elvar Geir Magnússon
8. mín MARK!
Andri Lucas Guðjohnsen (Ísland)
Stoðsending: Stefán Teitur Þórðarson
VÁÁÁÁÁÁ ANDRI LUCAS!!!! Slicker ný kominn í markið, hann sparkar boltanum frá marki og það er Stefán Teitur sem skallar boltann beint á Andra sem er rétt fyrir utan teiginn.

Andri snýr sér og tekur bara skotið, frábært skot sem syngur í netinu!

Þvílík byrjun!!!
7. mín
Inn:Cieran Slicker (Skotland) Út: Angus Gunn (Skotland)
Markvörður Ipswich Town kemur hér inn á fyrir Gunn. Fyrsti landsleikur hans, en hann spilaði aðeins einu sinni fyrir Ipswich á liðnu tímabili.

Gunn náði bara rétt rúmlega tveimur mínútum inn á vellinum.
5. mín
Alveg rúm mínúta sem þetta hefur tekið að hlúa að Angus Gunn og Skotar eru að undirbúa skiptingu.
3. mín
Langt innkast hjá Íslandi. Stefán Teitur hendir þessu inn í teig, Guðlaugur Victor fleytir boltanum áfram en Angus Gunn grípur inn í.

Hann liggur svo eftir alveg sárþjáður eftir að hann lenti á Andra Lucasi en þetta lýtur ekki vel út fyrir markmann Skota.
1. mín
Leikur hafinn
Sænski dómarinn flautar og við erum farin af stað! Það er Andri Lucas Guðjohnsen sem tekur upphafssparkið.

Áfram Ísland!
Fyrir leik
Arnar Gunnlaugsson segir að það ber að varast McTominay Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var í viðtali við Stöð 2 Sport þar sem fór yfir hvernig Ísland þarf að verjast aðal stjörnu Skotana, Scott McTominay.

"Sérstaklega inn í boxinu, hann er í því hlutverki hjá Skotunum að fara inn í boxið og taka á móti fyrirgjöfum. Það eru mörk í honum eins og menn hafa kannski tekið eftir hjá Napoli. Þannig sérstaklega þegar fyrirgjafir eru að koma þá þurfum við að vera vel vakandi hvar hann er, því hann er mjög öflugur í að hreyfa sig, þessar litlu hreyfingar. Að fara frá varnarmönnum og þefa upp hvar boltinn mun detta inn í teig andstæðinga, þannig það er eitthvað sem við munum skoða."
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spennandi að sjá hvernig Elías notar tækifærið
Mynd: KSÍ

Hákon Rafn varði mark Íslands í umspilinu gegn Kósovó en Elías Rafn fær nú tækifæri til að láta ljós sitt skína. Arnar Gunnlaugs var búinn að ýja að því að það fengi nýr maður sénsinn í markinu í þessum glugga.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Verða um 35 þúsund manns á leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Samkvæmt upplýsingum var búið að selja um 32 þúsund miða í morgun. Leikvangurinn tekur yfir 50 þúsund áhorfendur.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Svona leggur Skotland línurnar
Mynd: BBC

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Hörður Björgvin ræddi við Fótbolta.net í vikunni
Mynd: KSÍ

„Það er mjög góð tilfinning að vera mættur aftur og maður er þakklátur eftir allan þennan tíma að fá tækifæri til að stíga aftur á fótboltavöllinn. Ég er himinglaður," segir Hörður en hann spjallaði við Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Skotlandi.

„Ég er búinn að ganga í gegnum langan og erfiðan tíma. Ég þurfti að fara í aðra aðgerð því sú fyrri gekk ekki vel. Seinni aðgerðin tókst rosalega vel og allt lagað sem þurfti að laga og hér er ég í dag og geng glaður um."

Hörður sleit krossband í hné og varð síðan fyrir bakslagi. Hann viðurkennir að þessi erfiði tími hafi tekið á andlega.

„Heldur betur. Maður sá ekki til sólar og það var mjög dimmt yfir manni. Ég hafði samt marga góða að sem hjálpuðu mér helling að komast í gegnum þetta allt. Hausinn á mér er sterkur og ég vissi að ljósið myndi koma."

Hörður hefur getað æft að fullu í um þrjá mánuði og kom við sögu með Panathinaikos í lokaumferð grísku deildarinnar en hann lék síðustu tólf mínúturnar gegn Olympiakos í síðasta mánuði. Mikið hefur verið rætt um skort á varnarmönnum í íslenska landsliðinu og Hörður segist klár í að spila í komandi landsleikjum.

„Annars væri ég ekki hér. Ég er 100% klár og ef kallið kemur og ég fæ mínútur þá tek ég þær. Ég er hér og að æfa á fullu svo ég gef kost á mér."

Útilokar að koma til Íslands
Samningur Harðar við Panathinaikos er runninn út og hann hefur yfirgefið félagið. Hann er því félagslaus og eðlilegt að spyrja hvar hann verði á næsta tímabili?

„Ég útiloka það allavega að koma til Íslands," segir Hörður og brosir. „Ég veit að Framarar hafa áhuga. Ég er 32 ára og í toppstandi. Ég á nokkur ár eftir og líður vel, ég ætla að reyna að halda mér erlendis."

Hörður segir möguleika á því að hann verði áfram í Grikklandi en hægt er að horfa á viðtalið í heild hér að ofan. Þar tjáir Hörður sig meðal annars um Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfara og um spennuna fyrir því að vera aftur með íslenska landsliðinu á leikdegi.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Hörður Björgvin byrjar sinn fyrsta leik síðan 2023 Arnar Gunnlaugsson hefur tilkynnt byrjunarliðið en athygli vekur að Hörður Björgvin Magnússon fer beint í byrjunarliðið. Hann er því að byrja sinn fyrsta leik síðan í september 2023 en hann hefur verið að ganga í gegnum erfið meiðsli.

Fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er ekki með í þessu verkefni vegna meiðsla en Andri Lucas Guðjohnsen er fremsti maður. Hákon Arnar Haraldsson er með fyrirliðabandið.

Elías Rafn Ólafsson fær tækifæri í markinu.

Þá vekur athygli að Mikael Egill Ellertsson er vinstri bakvörður í fjögurra manna varnarlínu eftir því sem við komumst næst.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarlið Íslands
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Margir í skoska hópnum að koma úr öflugu tímabili
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Það er mikil spenna fyrir skoska liðinu hér í Skotlandi enda margir leikmenn að koma í þetta verkefni eftir öflug tímabil með sínum félagsliðum.

Meðal leikmanna í skoska hópnum eru Andy Robertson Englandsmeistari með Liverpool og Ítalíumeistararnir Scott McTominay og Billy Gilmour sem leika fyrir Napoli.

Lewis Ferguson fagnaði ítölskum bikarmeistaratitli sem fyrirliði Bologna og bakvörðurinn Max Johnston varð austurrískur meistari með Sturm Graz og áfram mætti telja.

   04.06.2025 11:00
Ísak tilbúinn að kljást við McTominay - „MVP á Ítalíu“

   06.06.2025 10:10
Robertson um leikinn gegn Íslandi og stöðu sína hjá Liverpool
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Hákon Arnar fyrirliði
Mynd: KSÍ

„Ég er mjög spenntur. Þetta hefur verið draumur síðan ég var krakki," segir Hákon Arnar Haraldsson sem mun leiða Ísland út á Hampden Park sem fyrirliði gegn Skotlandi í kvöld.

Hákon er varafyrirliði en er með bandið í þessum glugga þar sem Orri Steinn Óskarsson er ekki með í verkefninu vegna meiðsla.

„Ég vona að þetta verði skemmtilegur leikur. Seinni boltarnir verða mjög mikilvægir. Við þurfum að fara eftir okkar gildum og leikplaninu," segir Hákon.

Í viðtali við Stöð 2 segir hann að vel hafi verið farið yfir leikina í síðasta glugga, tapleikina gegn Kósovó í umspili Þjóðadeildarinnar.

„Það er hellingur sem þarf að bæta en við erum búnir að skoða leikina vel og hvað við getum bætt, aðalatriðin. Svo þurfum við að bæta ofan á og gera betur."
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Dæmir sinn fyrsta A-landsleik Dómarateymi leiksins kemur frá Svíþjóð en aðaldómari verður Granit Maqedonci. Hann fæddist í Kósovó en flutti ungur að árum með fjölskyldu sinni til Svíþjóðar.

Hann er 36 ára og byrjaði að dæma í efstu deild í Svíþjóð 2018 en leikurinn í kvöld er hans fyrsti A-landsleikur.

Notast verður við VAR myndbandsdómgæslu í leiknum í kvöld. Þess má svo geta að sex skiptingar eru leyfðar, í þremur stoppum.

Skotland - Ísland
Dómari: Granit Maqedonci, Svíþjóð
Aðstoðardómari 1: Marcus Lundgren Klitte, Svíþjóð
Aðstoðardómari 2: Simon Kristensson, Svíþjóð
4ði dómari: Mohammed Al-Hakim, Svíþjóð
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Velkomin með okkur á Hampden Park!
Mynd: KSÍ

Í kvöld, klukkan 18:45 að íslenskum tíma, mun íslenska landsliðið leika vináttulandsleik gegn Skotlandi á Hampden Park í Glasgow. Eftir þann leik verður haldið til Norður-Írlands og leikið gegn heimamönnum næsta þriðjudag.

Íslenski landsliðshópurinn kom saman til æfinga á mánudag en meðal leikmanna í hópnum er varnarmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon. Hörður er kominn aftur af stað eftir erfið meiðsli en hann hefur ekki spilað landsleik síðan í september 2023.

Sævar Atli Magnússon og Dagur Dan Þórhallsson voru kallaðir inn í hópinn vegna meiðsla Bjarka Steins Bjarkasonar og Arnórs Sigurðssonar. Jóhann Berg Guðmundsson meiddist á æfingu á Hampden Park í gær og verður því ekki með.

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er ekki með í þessu verkefni vegna meiðsla og ef horft er á síðasta byrjunarlið, í tapinu gegn Kósovó í umspili Þjóðadeildarinnar, er Valgeir Lunddal Friðriksson ekki valinn að þessu sinni.

Komandi leikir eru fyrstu vináttuleikir íslenska liðsins undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar, sem tók við liðinu í byrjun árs. Ísland býr sig undir undankeppni HM sem fer fram í byrjun september en strákarnir okkar eru með Frakklandi, Úkraínu og Aserbaídsjan í riðli. Sigurliðið fer beint á HM en liðið í öðru sæti í umspil.

„Ég vil sjá framfarir að því leyti á þá vegu að leikmenn skilji betur kerfið okkar. Við fáum þennan glugga núna til að fullkomna skilning manna á þessu kerfi. Það eru fáar æfingar og fáir fundir og menn þurfa að vera með einbeitinguna í lagi. Auðvitað viljum við ná í úrslit og fá sjálfstraust inn í hópinn en helst vil ég sjá bætingu," sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari þegar hann var spurður að því hvað hann vildi fá út úr þessum glugga.

Ísland hefur sex sinnum áður mætt bæði Skotlandi og Norður-Írlandi. Skotar hafa unnið alla sex leikina gegn íslenska liðinu, en fjórum sinnum hefur Ísland fagnað sigri gegn Norður-Írum, sem hafa unnið tvo leiki.

Mynd: KSÍ

Svona er hópurinn:
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 6 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 19 leikir
Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 2 leikir

Guðlaugur Victor Pálsson - Plymouth Argyle F.C. - 48 leikir, 2 mörk
Dagur Dan Þórhallsson - Orlando City - 6 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa - 106 leikir, 5 mörk
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F.C. - 57 leikir, 3 mörk
Daníel Leó Grétarsson - SonderjyskE - 22 leikir
Hörður Björgvin Magnússon - Panathinaikos F.C. - 49 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Strömsgodset - 9 leikir, 1 mark
Mikael Egill Ellertsson - Venezia FC - 20 leikir, 1 mark
Ísak Bergmann Jóhannesson - Köln - 33 leikir, 4 mörk
Arnór Ingvi Traustason - IFK Norrköping - 65 leikir, 6 mörk
Þórir Jóhann Helgason - U.S. Lecce - 18 leikir, 2 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Preston North End F.C. - 28 leikir, 1 mark
Mikael Anderson - AGF - 31 leikur, 2 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - Sparta Rotterdam - 3 leikir
Willum Þór Willumsson - Birmingham City F.C. - 16 leikir
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha BSC - 44 leikir, 6 mörk
Sævar Atli Magnússon - Lyngby - 5 leikir
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 20 leikir, 3 mörk
Andri Lucas Guðjohnsen - K.A.A. Gent - 32 leikir, 8 mörk
Albert Guðmundsson - ACF Fiorentina - 39 leikir, 10 mörk
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
1. Elías Rafn Ólafsson (m)
4. Guðlaugur Victor Pálsson ('60)
5. Sverrir Ingi Ingason ('77)
6. Ísak Bergmann Jóhannesson ('72)
8. Hákon Arnar Haraldsson
10. Albert Guðmundsson
11. Jón Dagur Þorsteinsson ('72)
16. Stefán Teitur Þórðarson ('72)
22. Andri Lucas Guðjohnsen
23. Hörður Björgvin Magnússon ('46)
24. Mikael Egill Ellertsson

Varamenn:
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
13. Anton Ari Einarsson (m)
2. Logi Tómasson
9. Sævar Atli Magnússon
14. Þórir Jóhann Helgason
15. Willum Þór Willumsson ('72)
17. Aron Einar Gunnarsson ('77)
18. Mikael Anderson ('72)
18. Daníel Leó Grétarsson ('46)
19. Dagur Dan Þórhallsson ('60)
20. Kristian Hlynsson
21. Arnór Ingvi Traustason ('72)

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Davíð Snorri Jónasson

Gul spjöld:
Jón Dagur Þorsteinsson ('69)

Rauð spjöld: