Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 11:00
Elvar Geir Magnússon
Glasgow
Ísak tilbúinn að kljást við McTominay - „MVP á Ítalíu“
Ísak Bergmann Jóhannesson.
Ísak Bergmann Jóhannesson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Scott McTominay.
Scott McTominay.
Mynd: EPA
Á föstudagskvöld, klukkan 18:45 að íslenskum tíma, mun íslenska landsliðið leika vináttulandsleik gegn Skotlandi á Hampden Park í Glasgow. Eftir þann leik verður haldið til Norður-Írlands og leikið gegn heimamönnum næsta þriðjudag.

Ísland býr sig undir undankeppni HM sem hefst í byrjun september.

„Glugginn síðasti var erfiður, sérstaklega seinni leikurinn. Við þurfum að ná betri glugga núna og ná betri frammistöðu. Fyrri leikurinn gegn Kósovó var að mörgu leyti mjög góður en við eigum að gera miklu betur og vonumst til að gera það gegn Skotlandi og Norður-Írlandi," segir Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Íslands, um komandi leiki.

„Það hefur verið talað lengi um okkur sem spennandi lið og nú þurfum við bara að ná í úrslit og vinna fótboltaleiki. Við ætlum að vera klárir í haust þegar kemur að undankeppninni."

Hvernig lýst þér á að mæta Skotum?

„Þeir eru með mjög gott lið, Scott McTominay er náttúrulega MVP í ítölsku deildinni og með fleiri góða leikmenn. Þetta verður gaman. Um 50 þúsund manns á vellinum og okkur hlakkar til að takast á við það verkefni og sýna góða frammistöðu," segir Ísak.

Napoli keypti McTominay frá Manchester United fyrir ári síðan og skoski miðjumaðurinn var lykilmaður í því að Napoli varð Ítalíumeistari. Ísak segist klár í að kljást við McTominay á miðsvæðinu ef hann fær kallið,

„Ég vonast til þess að fá að reyna að taka boltann af honum en ég sinni því hlutverki sem kemur og reyni að gera það besta úr því."
Ísak Bergmann: Þurfti að slökkva á samfélagsmiðlum
Athugasemdir
banner