Fotbolti.net
06.06.25 - 19:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu glæsilegt mark hjá Andra Lucasi - „Þetta var hamar í lagi"

Sjáðu glæsilegt mark hjá Andra Lucasi - „Þetta var hamar í lagi"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjan
Ísland hóf leikinn gegn Skotlandi á Hampden Park af krafti því liðið náði forystunni eftir tæplega tíu mínútna leik.
Lestu um leikinn: Skotland 1 - 3 Ísland
Angus Gunn, markvörður Skota, þurfti að fara af velli og Cieran Slicker kom inn á í hans stað í sínum fyrsta landsleik.

Strax í kjölfarið átti hann sendingu sem fór beint á Stefán Teit sem skallaði boltann til Andra Lucasar sem átti frábært skot fyrir utan teiginn og boltinn söng í netinu.

„Vá Andri Lucas Guðjohnsen, þetta var hamar í lagi og Ísland hefur tekið forystuna á Hampden Park í Glasgow með þessu líka ruglaða marki frá Andra Lucasi," sagði Rikharð Óskar Gunnarsson í útsendingu Stöðvar 2 Sport.

Sjáðu markið hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.