Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
Í BEINNI
Vináttulandsleikur
Kanada
LL 2
2
Ísland
Kanada
2
2
Ísland
0-1 Orri Steinn Óskarsson (f) '9
0-2 Orri Steinn Óskarsson (f) '22
Jonathan David '66 , víti 1-2
Jonathan David '75 , víti 2-2
Tajon Buchanan '81
28.03.2026  -  17:20
Toronto
Vináttulandsleikur
Aðstæður: Völlurinn góður en það er skítakuldi
Dómari: Jon Freemon (Bandaríkin)
Áhorfendur: Um 30 þúsund
Maður leiksins: Orri Steinn Óskarsson
Byrjunarlið:
1. Dayne St. Clair (m)
4. Kamal Miller ('74)
5. Joel Waterman ('63)
6. Mathieu Choinière ('63)
7. Jonathan David ('86)
9. Cyle Larin
17. Tajon Buchanan
19. Nathan Saliba ('86)
20. Ali Ahmed ('63)
22. Richie Laryea
23. Niko Sigur

Varamenn:
16. Maxime Crépeau (m)
18. Owen Goodman (m)
2. Jahkeele Marshall-Rutty
3. Ralph Priso ('86)
8. Ismael Kone
10. Junior Hoilett
11. Liam Millar ('86)
12. Tani Oluwaseyi
13. Derek Cornelius ('74)
14. Aribim Pepple
15. Luc de Fougerolles
18. Marcelo Flores ('63)
21. Jonathan Osorio ('63)
24. Daniel Jebbison ('63)
25. Jacen Russell-Rowe

Liðsstjórn:
Jesse Marsch (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Tajon Buchanan ('81)
Leik lokið!
Jafntefli niðurstaðan Á þriðjudag er komið að leik gegn Haíti. Ég ætla að henda mér í lyftuna og taka viðtöl sem koma inn á síðuna seinna í kvöld.

Bæ í bili!
93. mín
Stefán Teitur með skot fyrir utan teig. Yfir.
92. mín
Brynjólfur Willumsson!!! Loksins kom íslenskt marktækifæri í seinni hálfleikinn. Binni í nokkuð þröngu færi en kom skoti á markið. Það var varið.
91. mín
Þremur mínútum bætt við
90. mín
Kanada fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika. Höfum siglt inn í uppbótartíma.

Elías grípur fyrirgjöfina.
88. mín
Liam Miller sem var að koma inn sem varamaður farinn að haltra. Ekki lengi að verða fyrir einhverjum meiðslum.
86. mín
Inn:Ralph Priso (Kanada) Út:Nathan Saliba (Kanada)
86. mín
Inn:Liam Millar (Kanada) Út:Jonathan David (Kanada)
Engin þrenna frá David.
85. mín
Ísland strax farið að komast ofar á völlinn eftir rauða spjaldið sem heimamenn fengu. Þetta hafði verið fulllangur kafli með einstefnu Kanada.
81. mín Rautt spjald: Tajon Buchanan (Kanada)
Rekinn af velli fyrir olnbogaskot við hliðarlínuna Mikael fær olnbogann frá honum í sig í baráttunni. Ísland ellefu gegn tíu.
80. mín Gult spjald: Mikael Anderson (Ísland)
Ekki lengi að koma sér í svörtu bókina.
77. mín
Svakalegur meðbyr með Kanada sem vinnur horn Leikurinn fer algjörlega fram á vallarhelmingi Íslands.
76. mín
Inn:Andri Fannar Baldursson (Ísland) Út:Ísak Bergmann Jóhannesson (Ísland)
76. mín
Inn:Mikael Anderson (Ísland) Út:Jón Dagur Þorsteinsson (Ísland)
75. mín Mark úr víti!
Jonathan David (Kanada)
Keimlíkt vítinu áðan Elías skutlar sér aftur í sama horn en David spyrnir í hitt hornið. Staðan orðin jöfn.
74. mín
Inn:Derek Cornelius (Kanada) Út:Kamal Miller (Kanada)
74. mín
Kanada fær annað víti! Daniel Jebbison fer einn gegn einum á Hörð Björgvin í teignum og fellur. Vítaspyrna dæmd á Hörð.

Koma svo Elías!
74. mín
Richie Laryea með marktilraun rétt fyrir utan teig, fast skot en talsvert framhjá.
73. mín
Komumst lítt áleiðis núna Ísland lítið að ná að halda í boltann þessa stundina. Kanadamenn fljótir að vinna hann aftur í pressunni. Nathan Saliba með marktilraun en boltinn himinhátt yfir.
71. mín
Þetta mark hefur hleypt lífi í kanadísku áhorfendurna Kanada að búa sig undir hornspyrnu. Barátta í teignum og á endanum hreinsar Hörður Björgvin frá.
67. mín
Inn:Kristall Máni Ingason (Ísland) Út:Kristian Hlynsson (Ísland)
Kristall fær hér stórt tækifæri.
67. mín
Inn:Stefán Teitur Þórðarson (Ísland) Út:Orri Steinn Óskarsson (f) (Ísland)
Engin þrenna í dag.
66. mín Mark úr víti!
Jonathan David (Kanada)
Sendir Elías í rangt horn Mikið fagnað á vellinum.
65. mín
Kanada fær víti Mikael dæmdur brotlegur í teignum. 'Soft' víti en hægt að réttlæta dóminn. Jonathan David á punktinn.
63. mín
Inn:Jonathan Osorio (Kanada) Út:Mathieu Choinière (Kanada)
63. mín
Inn:Daniel Jebbison (Kanada) Út:Joel Waterman (Kanada)
63. mín
Inn:Marcelo Flores (Kanada) Út:Ali Ahmed (Kanada)
63. mín
Jesse Marsch hefur séð nóg Er að negla í þrefalda.
62. mín
Aðstoðardómari eitt er flagg-óður þessa stundina og flaggar okkar rangstæða trekk í trekk. Orri hristir hausinn.
60. mín
BESTA FÆRI KANADA Ahmed með klóka sendingu, laumar boltanum á Jonathan David í teignum og hann er í dauðafæri en Elías lokar frábærlega og ver. Markvörður okkar hefur ekki stigið feilspor.
59. mín
Orri með boltann rétt fyrir utan teig en Richie Laryea nær að verjast og fær svo aukaspyrnu.
58. mín
Augljóslega keyrt í bakið á Orra en Jon Freemon dómari dæmir ekkert. Hefur annars dæmt þennan leik ljómandi vel.
57. mín
Það er svo sannarlega ekki vináttulandsleikjabragur á þessum leik, okkar menn láta vel finna fyrir sér og það er gaman að sjá.
55. mín
Ísak Bergmann togaði aðeins í treyju Richie Laryea við hliðarlínuna og fær dæmda á sig aukaspyrnu. Skömmu seinna kemst Laryea svo í hættulega stöðu og á fyrirgjöf sem enginn samherji hans kemst í.
52. mín
Brynjólfur Willumsson kominn á fætur eftir að hafa legið í grasinu í smástund. Virðist haltra þetta af sér.
51. mín
Cyle Larin sækir, Hörður Björgvin til varnar. Larin með sendingu sem fer af Herði og afturfyrir. Horn til heimamanna.

Fín hornspyrna sem endar með því að Larin á skalla í hliðarnetið frá fjærstönginni.
50. mín
Mikael Egill leikur á leikmann Kanada og fær aukaspyrnu. Hefur verið algjörlega frábær í leiknum.
49. mín
Sending á Jón Dag en hann flaggaður rangstæður.
48. mín
Öflug mótspyrna íslenska liðsins virðist aðeins vera farin að fara í taugarnar á nokkrum leikmönnum kanadíska liðsins. Það eru bara góðar fréttir.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað Búið að birta skemmtilega. Fyrirgjöf frá hægri sem Elías handsamar vel.
45. mín
45. mín
Hálfleikur
Íslenska liðið vel samstillt og leiðir hér 2-0 í hálfleik! Orri Steinn Óskarsson er að hirða fyrirsagnirnar.
45. mín
Legðu orð í belg á X Væri gaman að fá innlegg frá lesendum gegnum X samfélagsmiðilinn, notið #fotboltinet kassamerkið góða!
44. mín
Mikael Egill gerir frábærlega varnarlega í baráttu við Buchanan og vinnur aukaspyrnu við hornfánann.
43. mín
Sending frá hægri og David sýndist mér ná skoti en framhjá.
40. mín
Hörður Björgvin með sendingu til baka á Elías en Buchanan snöggur og ekki langt frá því að komast í boltann, Elías rennir sér á boltann og þetta reddast.
38. mín
Orri Steinn flaggaður rangstæður.
37. mín
Ljómandi fín spyrna en framhjá Mathieu Choinière, leikmaður Los Angeles FC, sér um að taka föstu leikatriðin hjá Kanada og hann tók þessa aukaspyrnu. Ljómandi fín spyrna sem flaug rétt framhjá stönginni.
35. mín Gult spjald: Jón Dagur Þorsteinsson (Ísland)
Stuðningsmenn Kanada fagna þessu gula spjaldi eins og marki.

Jón Dagur braut á andstæðingi og Kanada fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Skotfæri.
34. mín
Ísland fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika Hákon tekinn niður úti hægra megin. Ísak og Jón Dagur standa við boltann. Jón Dagur tekur spyrnuna en St. Clair markvörður heimamanna gerir vel og handsamar boltann.
33. mín
Elías með svör við öllu Greip hornspyrnu Choinière örugglega.
32. mín
Munaði litlu Vel spilað hjá Kanada og Hörður Björgvin hreinsar í horn. Choiniere með stórhættulega hornspyrnu og boltinn skoppar rétt fyrir framan íslenska markið áður en við náðum að koma knettinum út af. Horn hinumegin!
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Jonathan David með laglegan snúning og skot en boltinn beint í fang Elíasar.
29. mín
Ef og hefði... Ef Orri Steinn Óskarsson hefði verið heill í undankeppni HM...
28. mín
Snjókorn falla Agnarlítil snjókorn farin að koma af himnum. Þakka enn og aftur fyrir að fréttamannastúkan hér sé innandyra.
26. mín
Kanada fær aukaspyrnu, sending inn í teiginn en þar er fyrirliði vor Orri Steinn Óskarsson mættur til að skalla boltann frá. Allt í öllu!
25. mín
Hér má heyra saumnál detta Kanadískir kollegar mínir hér í fréttamannastúkunni eru hálf orðlausir.
22. mín MARK!
Orri Steinn Óskarsson (f) (Ísland)
Stoðsending: Mikael Egill Ellertsson
ORRI ÓSTÖÐVANDI!!!! Mikael Egill leikur á Niko Sigur og á frábæra sendingu á Orra sem tekur hann í fyrsta rétt innan vítateigs...

Bang og mark! Þéttingsfast skot.

Það er verið að skemma partíið hjá Kanada!
21. mín
Elías ver Mathieu Choinière tekur hornspyrnuna stutt. Kanada spilar sín á milli og á endanum fær liðið skotfæri en Elías svo sannarlega vandanum vaxinn og ver af öryggi.
19. mín
Ali Ahmed með stungusendingu ætlaða Richie Laryea en of föst. Stuttu seinna kemst Laryea svo í einn á einn stöðu gegn Guðlaugi Victori en okkar maður hefur betur í því einvígi.
15. mín
Það er fínasta stemning á vellinum. Áhorfendur reyna að halda á sér hita með að syngja og tralla. Baula svo á Guðlaug Victor sem þeir telja að taki sér of langan tíma í að taka innkast.
14. mín
Jonathan David kemur boltanum á íslenska rammann en aldrei hætta. Auðvelt fyrir Elías.
12. mín
Buchanan heldur áfram að vera hættulegasti maður Kanada. Hann með fyrirgjöf frá vinstri, boltinn endar hjá Richie Laryea sem er í ágætis skotfæri en hittir boltann illa og hann siglir framhjá.
9. mín MARK!
Orri Steinn Óskarsson (f) (Ísland)
SLAPP EINN Í GEGN OG KLÁRAÐI FAGLEGA!!! Skyndilega var Orri kominn einn gegn markverði Kanada og nánast með allan tíma heimsins. Gerði þetta frábærlega!

Endurkomumark eftir hrikaleg mistök í vörn Kanada. Kamal Miller með afleita sendingu.
9. mín
Tajon Buchanan að skapa usla á hægri kantinum hjá Kanada og okkar menn í smá brasi með hann. Spilar fyrir Villarreal á Spáni þessi kappi.
7. mín
Brynjólfur sparkaður niður á miðjum vallarhelmingi Kanada og Ísland fær aukaspyrnu. Ekki mjög tíðindamiklar upphafsmínútur. Gömlu góðu þreifingarnar.
2. mín
Kanada fær hornspyrnu Smá darraðadans efitr langt innkast heimamanna og Ísland hreinsar í horn. Eftir hornspyrnuna er barátta í teignum, boltinn aftur útaf og bandaríski dómarinn dæmir aðra hornspyrnu við mótmæli íslenska liðsins.
1. mín
Leikur hafinn
Það fyrsta sem gerist í leiknum er ða dómarinn lætur skipta um bolta, eitthvað linur þessi keppnisbolta sem var byrjað að spila með!
Fyrir leik
Ísland er í hvítu treyjunum
Mynd: KSÍ

Fyrir leik
Eldglæringar og stuð þegar kanadíska þjóðsöngnum lauk Vel tekið undir. Á skjánum hér í fréttamannaaðstöðunni sást lítill hópur Íslendinga. Það eru einhverjar bláar treyjur í stúkunni svo ekki séu þær margar.
Fyrir leik
Verið að leika þjóðsöngvana
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Fyrir leik
Ekki vináttuleikur „Við vitum að við erum komnir á mótið en við lítum ekki á þessa leiki sem vináttuleiki. Þetta er undirbúningur fyrir HM. Við vitum að ef við tökum þessum leikjum ekki alvarlega þá mætum við ekki undirbúnir í stærstu keppni lífs okkar," segir Ismael Kone, landsliðsmaður Kanada sem spilar fyrir Sassuolo á Ítalíu.

„Við erum meðvitaðir um þetta svo við förum í alla leiki til að framkvæma allt sem við höfum lært, koma inn með réttu hugarfari og baráttuanda."

   28.03.2026 12:01
Kone: Leikurinn gegn Íslandi verður ekki vináttuleikur
Fyrir leik
Gamlir liðsfélagar mætast Skærasta stjarna Kanada er sóknarmaðurinn Jonathan David sem spilar fyrir Juventus. David gekk í raðir ítalska félagsins í fyrra eftir að hafa spilað með Hákoni Arnari Haraldssyni hjá Lille en þeir tveir náðu gríðarlega vel saman á vellinum.

„Það var mjög leiðinlegt að missa hann. Hann er ógeðslega góður í fótbolta og er fótboltaheili. Við náðum vel saman en það var skiljanlegt fyrir hann að taka skref upp á við. Hann var búinn að vera þarna í fimm ár og vinna titil. Maður skilur hann vel," sagði Hákon við Fótbolta.net í vikunni.

„Það verður gaman að hitta hann aftur. Maður fær aðeins meiri löngun í að vinna því maður þekkir hann vel. Þetta verður mjög gaman."

Mynd: EPA

Fyrir leik
Undir stjórn Arnars hefur Ísland ekki verið í vandræðum með að skora þegar hann er með sína bestu leikmenn til taks, Ísland yfir 1 mark er 3.30 á Epic, fallega við það er að ef þeir skora bara 1 færðu endurgreitt.
Fyrir leik
Leikurinn sjálfur hefst 17:20 Eins og tíðkast í kappleikjum hér vestanhafs þá mun sjálfur leikurinn alls ekki byrja á slaginu 17. Þá hefst dagskrá á vellinum en sjálfur leikurinn mun svo hefjast 17:20 samkvæmt upplýsingum á leikskýrslu sem var verið að dreifa í fréttamannastúkunni.
Fyrir leik
Dómarar frá Bandaríkjunum MLS-dómarinn Jon Freemon er með flautuna í dag. Jeremy Kieso og Ryan Graves eru aðstoðardómarar. Fjórði dómarinn kemur frá Mexíkó og heitir hann Rafael Lopez.
Fyrir leik
Nánast eins og byrjunarliðið gegn Úkraínu
Mynd: KSÍ

Arnar heldur sig við grunninn að byrjunarliðinu í síðasta mótsleik, tapinu gegn Úkraínu. Allir þeir leikmenn sem eru í hópnum og byrjuðu þann leik þeir byrja hér í dag. Það vantar Andra Lucas sem er meiddur en Orri Steinn kemur inn.
Fyrir leik
Byrjunarlið Íslands - Orri og Brynjólfur fremstir
Mynd: KSÍ

Arnar Gunnlaugsson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt.

Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði landsliðsins, snýr aftur eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í síðustu gluggum. Hann er fremstur ásamt Brynjólfi Andersen Willumssyni sem er að leika áttunda A-landsleik sinn.

Vörnin er sterk. Guðlaugur Victor Pálsson er í hægri bakverði, Mikael Egill Ellertsson vinstra megin og þá verður Hörður Björgvin Magnússon og Sverrir Ingi Ingason í miðri vörn.

Við fáum Skagatenginguna áfram á miðsvæðinu með þá Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson, og þá eru Jón Dagur Þorsteinsson og Kristian Nökkvi Hlynsson á köntunum.

Elías Rafn Ólafsson er á sínum stað í markinu.

Mynd: Brynjar Ingi Erluson

Fyrir leik
Jonathan David er með fyrirliðabandið hjá heimamönnum
Fyrir leik
Kalt í Kanada!
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Hitastigið er um frostmarkið. Ég tók göngutúr á völlinn og þá var heldur betur gott að eiga góða úlpu, eins og sungið hefur verið um. Sem betur fer er fjölmiðlaaðstaðan innandyra. Mikið fagnaðarefni. Líka fagnaðarefni að fjölmiðlafólk fær frítt popp.
Fyrir leik
Fyrir leik
Orri Steinn Óskarsson í viðtali:
Fyrir leik
Arnar Gunnlaugsson í viðtali:
Fyrir leik
Hákon Arnar: Skemmtilegt verkefni „Við viljum halda áfram að bæta okkar leik. Þetta eru mjög góðir leikir til að gera það, varnarlega og sóknarlega. Mér fannst við fá á okkur of mörg mörk gegn Úkraínu, við fáum á okkur sjö mörk gegn Úkraínu í tveimur leikjum og það er of mikið ef við ætlum okkur að fara á EM," segir Hákon.

„Leikmennirnir sem við erum að fara að mæta hafa helling að keppa um. Þeir eru að berjast um að vera í HM hópnum. Þetta verður ekki beint æfingaleikjafílingur og ég býst við að það verði fullt af fólki á leiknum gegn Kanada. Þetta verður skemmtilegt verkefni til að takast á við."

   26.03.2026 13:30
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
Fyrir leik
Fékk fiðring í magann „Það er alltaf gaman að vera í landsliðshópnum og auðvitað er maður ánægður að vera í fyrsta sinn í svona almennilegum glugga. Maður fékk smá fiðring í magann að fá loksins kallið. Það tók smá tíma að átta sig á því," segir Kristall Máni Ingason.

   26.03.2026 07:30
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Fyrir leik
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann „Það er mjög kalt hérna en bara skemmtilegt að koma til Kanada, maður hefur aldrei komið hingað áður," sagði landsliðsmaðurinn Kristian Hlynsson við Fótbolta.net í vikunni.

Kristian segist setja stefnuna á að skora í landsliðstreyjunni í þessum glugga en hann hefur verið funheitur með félagsliði sínu, Twente í Hollandi.

   25.03.2026 23:40
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Fyrir leik
Aron Einar Gunnarsson: „Þetta eru flottir æfingaleikir gegn liðum sem eru að búa sig undir HM í sumar. Þetta eru flott lið sem við erum að fara að kljást við. Eins og 'coach' er búinn að tala um þá þurfum við núna að fara að ná í úrslit þrátt fyrir að þetta séu æfingaleikir. Þjáningin verður að vera þess virði að við séum búnir að læra. Við þurfum að ná í úrslit á þessu ári, svo einfalt er það," segir Aron.

„Það er margt sem við höfum verið að fara yfir, það er gott að koma saman og slípa allt saman."

„Það eru einhver meiðsli hjá Kanada og þá vilja aðrir grípa tækifærið. Leikurinn gegn Kanada verður erfiður. Þetta er flott lið, pressa hátt og það er mikil orka. Þetta verður barátta og tempó. Við verðum búnir undir það."


   25.03.2026 19:18
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Fyrir leik
Ísland hefur aldrei tapað fyrir Kanada KSÍ fjallar um það í aðdraganda leiksins að Ísland og Kanada hafa fjórum sinnum áður mæst í A-landsliðum karla og í öllum tilfellum hefur verið um vináttuleiki að ræða.

Tvisvar hafa liðin skilið jöfn og tvisvar hefur Ísland fagnað sigri. Þrír leikjanna hafa verið í janúarglugga og því ekki á opinberum landsleikjadögum.

   25.03.2026 14:00
Ísland hefur aldrei tapað gegn Kanada
Fyrir leik
Spilað á HM leikvangi
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

BMO Field leikvangurinn í Toronto er klár fyrir HM í sumar. Settar hafa verið upp tvær bráðabirgðastúkur sem stækka leikvanginn um 17 þúsund sæti og hann tekur því 45 þúsund áhorfendur sem eru kröfur frá FIFA fyrir mótið.

   25.03.2026 13:00
Ísland spilar fyrsta leikinn á endurbættum HM leikvangi Toronto
Fyrir leik
Yfirvegaðir, einbeittir og tilbúnir „Við erum yfirvegaðir, einbeittir og tilbúnir," sagði Jesse Marsch, þjálfari kanadíska landsliðsins, við fjölmiðlamenn í vikunni.

Kanada er í 29. sæti heimslistans en Ísland í 74. sæti.

„Það þarf að halda fókus og einbeitingu til að við séum tilbúnir að sýna góða frammistöðu í báðum leikjunum sem eru framundan. Við þurfum að halda okkar þróun áfram svo við verðum liðið sem við viljum verða," segir Marsch en Kanada mætir svo Túnis í komandi viku.

   25.03.2026 11:50
Marsch fyrir leikinn gegn Íslandi: Yfirvegaðir, einbeittir og tilbúnir
Fyrir leik
Velkomin til Toronto! Kanada og Ísland mætast í vináttulandsleik klukkan 17 að íslenskum tíma hér í Toronto. Leikurinn fer fram á BMO Field leikvanngum en þar verður keppt á HM í sumar. Á sama velli mun Ísland svo spila gegn Haítí á þriðjudaginn.

Báðir mótherjar okkar í þessum glugga eru að búa sig undir þátttöku á HM í sumar og þó að um æfingaleiki sé að ræða má því búast við því að ekkert verði gefið eftir þar sem leikmenn andstæðingana eru í samkeppni um að spila fyrir þjóð sína á HM.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Landsliðshópur Íslands
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylldand - 13 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 20 leikir
Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 3 leikir

Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 27 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 13 leikir, 1 mark
Hjörtur Hermannsson - Volos - 28 landsleikir, 1 mark
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 51 leikur, 2 mörk
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F.C. - 65 leikir, 4 mörk
Aron Einar Gunnarsson - Al Gharafa-SC - 107 leikir, 5 mörk
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montréal - 7 leikir
Guðlaugur Victor Pálsson - AC Horsens - 56 leikir, 5 mörk
Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 41 leikur, 6 mörk
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R. - 84 leikir, 27 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 34 leikir, 1 mark
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 10 leikir
Kristall Máni Ingason - SK Brann - 6 leikir
Jón Dagur Þorsteinsson - SK Brann - 52 leikir, 6 mörk
Mikael Neville Anderson - Djurgardens IF - 37 leikir, 2 mörk
Arnór Sigurðsson - Malmö FF - 34 leikir, 2 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 7 leikir, 1 mark
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 16 leikir, 7 mörk
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 28 leikir, 3 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 9 leikir, 2 mörk
Byrjunarlið:
1. Elías Rafn Ólafsson (m)
4. Guðlaugur Victor Pálsson
5. Sverrir Ingi Ingason
7. Hákon Arnar Haraldsson
8. Ísak Bergmann Jóhannesson ('76)
9. Orri Steinn Óskarsson (f) ('67)
11. Jón Dagur Þorsteinsson ('76)
14. Mikael Egill Ellertsson
20. Kristian Hlynsson ('67)
22. Brynjólfur Willumsson
23. Hörður Björgvin Magnússon

Varamenn:
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
13. Anton Ari Einarsson (m)
2. Logi Tómasson
3. Hjörtur Hermannsson
6. Andri Fannar Baldursson ('76)
8. Arnór Sigurðsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
14. Kristall Máni Ingason ('67)
15. Dagur Dan Þórhallsson
16. Stefán Teitur Þórðarson ('67)
17. Aron Einar Gunnarsson
18. Mikael Anderson ('76)

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Davíð Snorri Jónasson

Gul spjöld:
Jón Dagur Þorsteinsson ('35)
Mikael Anderson ('80)

Rauð spjöld: