„Æfingar hafa verið flottar, menn eru í góðum gír og það er alltaf góð samheldni innan hópsins. Við ætlum að halda áfram að byggja ofan á það sem við höfum verið að gera og vinna í að verða betri í því sem við erum að gera," segir landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson.
Íslenska landsliðið er í Toronto að búa sig undir vináttulandsleiki gegn Kanada og Haítí. Leikurinn gegn Kanada verður 17 á morgun að íslenskum tíma en mótherjar okkar eru að búa sig undir HM.
Stefán segir að búið sé að skoða kanadíska liðið vel.
Íslenska landsliðið er í Toronto að búa sig undir vináttulandsleiki gegn Kanada og Haítí. Leikurinn gegn Kanada verður 17 á morgun að íslenskum tíma en mótherjar okkar eru að búa sig undir HM.
Stefán segir að búið sé að skoða kanadíska liðið vel.
„Aðallega hvernig við spilum á móti mismunandi kerfum. Þegar þeir fara í 4-4-2 eða 4-3-3, hvernig við viljum stíga upp og pressa eins og við höfum verið að gera. Svo höfum við skoðað mikið af klippum af okkur úr síðustu undankeppni og hvað við getum lagað."
Rosalega spennandi klúbbur
Stefán færði sig um set í janúarglugganum þegar hann yfirgaf enska félagið Preston og fór í Hannover 96 sem er í toppbaráttu þýsku B-deildarinnar.
„Það var ekki mjög langur aðdragandi. Ég var kominn í frekar lélega stöðu hjá Preston og ekki að spila rosalega mikið. Bæði ég klúbburinn vorum sammála um að ég myndi reyna að finna mér eitthvað annað. Þá kom þessi spennandi kostur upp að fara til Hannover og ég er rosalega ánægður með að hafa farið þangað og í klúbb sem er að berjast um að komast upp í Bundesliguna. Þetta er rosalega spennandi klúbbur og spennandi tími," segir Stefán.
Hann missti sæti sitt í íslenska landsliðinu í síðustu undankeppni og segist hafa verið með landsliðið í huga þegar hann ákvað að finna sér nýtt félag.
„Já 100%. Ég tók þessa ákvörðun út frá því sérstaklega, ef ég hefði haldið áfram að vera á bekknum hefði staða mín hérna orðið lélegri og lélegri. Það er gott að vera kominn á stað þar sem ég finn fyrir mikilli trú frá þjálfaranum og fæ að spila meira og meira eftir að ég komst almennilega inn í þetta. Vonandi kemst ég aftur í liðið," segir Stefán.
Hefur mikla trú á að liðið komist upp í Bundesliguna
Það er spennandi lokakafli framundan í Þýskalandi og Stefán hefur mikla trú á því að liðið hafi það sem þarf til að komast alla leið upp í þýsku Bundesliguna.
„Það væri draumurinn eftir að hafa tekið skrefið þangað. Fimm lið og bara þrjú stig á milli. Næstu þrír leikir hjá okkur eru á móti þremur af fjórum. Þetta er rosalega tæpt og bara rosalega góð deild með mörgum stórum liðum. Ég hef rosalega mikla trú á að við munum svo standa uppi sem sigurvegarar."
Hver er munurinn á ensku B-deildinni og þýsku B-deildinni?
„Championship er deild sem er ekki lík neinni annarri. Hún er linnulaus og það er bara leikur eftir leik. Fótboltinn þar er öðruvísi eins og margir hafa komist að sem fara í þessa deild. Það er miklu meira spil finnst mér í þýsku deildinni en á Englandi þarftu að vera tilbúinn í slagsmál og baráttu."
Viðtalið er í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Stefán nánar um stemninguna í Þýskalandi og um komandi tímabil hjá hans uppeldisfélagi á Akranesi, ÍA.
Athugasemdir























