Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fös 27. mars 2026 12:40
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Eimskip
Elías Rafn á æfingu í Toronto.
Elías Rafn á æfingu í Toronto.
Mynd: KSÍ
Elías hefur spilað frábærlega með Midtjylland og það er bikarúrslitaleikur framundan.
Elías hefur spilað frábærlega með Midtjylland og það er bikarúrslitaleikur framundan.
Mynd: EPA
Í landsleik.
Í landsleik.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Undirbúningurinn hefur gengið vel. Það er alltaf gaman að koma saman og vera með þessum strákum. Þetta er bara frábært," segir landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson.

Íslenska landsliðið er í Toronto að búa sig undir vináttulandsleiki gegn Kanada og Haítí. Leikurinn gegn Kanada verður 17 á morgun að íslenskum tíma en mótherjar okkar eru að búa sig undir HM.

„Þetta er bara mjög spennandi, ég heyrði að það væri búið að selja 30 þúsund miða á leikinn. Það er bara gaman, þetta er góður gluggi fyrir okkur að fínpússa hluti og æfa okkur í því sem við viljum bæta. Þetta verður alvöru leikur, Kanada er með flotta og góða leikmenn. Þetta verður hörkuleikur," segir Elías.

Ísland var hársbreidd frá því að komast í umspilið um HM sæti og auðvitað hefðum við frekar viljað sjá okkar menn í því verkefni í þessum glugga.

„Þetta er smá sárt í dag þegar þessir leikir eru að byrja. Við höfum annað að undirbúa okkur fyrir og komum bara sterkir inn í næstu keppni."

Svekkelsi og stolt
Elías leikur fyrir danska liðið Midtjylland og er nýkominn úr Evrópueinvígi gegn enska úrvalsdeildarliðinu Nottingham Forest. Þar vann Forest eftir vítakeppni.

„Það er auðvitað alltaf svekkjandi að tapa leik, sérstaklega á þennan hátt. Á sama tíma er maður bara stoltur af því sem við gerðum. Við gerðum vel að vinna úti gegn Forest og ótrúlega svekkjandi að enda svona en þetta er fótboltinn," segir Elías.

Hann átti frábæra frammistöðu í Evrópudeildinni og fékk sérstaklega mikið lof í fyrri leiknum gegn Forest í útsláttarkeppninni. Hvernig metur hann eigin frammistöðu?

„Þetta var góð frammistaða en þetta er ekkert bara á mér. Þetta var algjör liðsframmistaða, við 'söfferuðum' í margar mínútur í lokin og gerðum það vel saman. Fótboltinn er liðsíþrótt."

Eftir að hafa spilað svona vel hafa verið vangaveltur um hvort Elías sé kominn undir smásjá enskra úrvalsdeildarliða. Hann segir að einbeiting sín sé á að vinna titla með Midtjylland þó auðvitað yrði það draumur að komast til Englands.

„Það er draumur allra fótboltamanna að spila í Premier league. Ég er ekkert að pæla í þessu núna, ég ætla að klára tímabilið með stæl og ná í tvo bikara með Midtjylland og svo sjáum við til."

Bikarúrslitaleikur framundan
Það eru spennandi vikur og mánuðir framundan hjá Midtjylland. Liðið er í baráttu um meistaratitilinn og þá mun það leika til úrslita gegn FCK í bikarkeppninni í maí.

„Það er spennandi að vera komnir í úrslitin í bikarnum og verður fyrsti úrslitaleikurinn minn allavega. Í deildinni eru fimm stig upp í AGF en þetta er enn í okkar höndum, ef við vinnum alla leiki og þá tvisvar þá verðum við meistarar," segir Elías.
Slapp
banner
banner