Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fim 26. mars 2026 07:30
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Eimskip
Kristall í rútunni á leið á æfingu í gær.
Kristall í rútunni á leið á æfingu í gær.
Mynd: KSÍ
Kristall Máni Ingason, leikmaður Brann, er í fyrsta sinn í íslenska landsliðshópnum í alþjóðlegum landsleikjaglugga. Framundan eru vináttulandsleikir; gegn Kanada á laugardag og Haítí á þriðjudag. Báðir leikirnir verða spilaðir í Toronto.

Kristall ræddi við Fótbolta.net á liðshótelinu.

„Það er alltaf gaman að vera í landsliðshópnum og auðvitað er maður ánægður að vera í fyrsta sinn í svona almennilegum glugga. Maður fékk smá fiðring í magann að fá loksins kallið. Það tók smá tíma að átta sig á því," segir Kristall.

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson þekkir vel til Kristals og sagði á fréttamannafundi að hann kæmi með ákveðna skapgerð og ákveðinn anda í hópinn. Hann lýsti honum sem „óþolandi á jákvæðan hátt".

Getur Kristall kvittað undir þessi orð Arnars?

„Já já maður getur alveg verið óþolandi, ég ætla ekki að ljúga öðru. En maður er orðinn aðeins öðruvísi en hjá Arnari með Víking. Maður leggur svolítið upp með að vera óþolandi á vellinum. Það er kannski minn leikur. Þegar maður finnur að liðið þurfi einn óþolandi þá tekur maður það stundum að sér. Það fer mér bara vel," segir Kristall sem vonast að sjálsögðu eftir að fá spiltíma í leikjunum sem eru framundan.

„Ef maður fær einhverjar mínútur sama hversu margar þær verða þá mætir maður inn á völlinn og spilar sinn leik, nýtur þess að spila fyrir Ísland. Ég tek öllu."

Kristall var að stíga upp úr meiðslum en hann var ekki með Brann í fyrstu umferð norsku deildarinnar en kom við sögu um síðustu helgi.

„Ég meiddist rétt fyrir byrjun tímabilsins í Noregi. Ég fékk aðeins í nárann en ég myndi segja að ég væri orðinn alveg 100%. Æfingin í gær var frekar róleg en sjáum hvernig þetta verður í dag." (Viðtalið var tekið í gær)

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Kristall meðal annars um skipti sín í Brann.
Slapp
banner