Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   mið 25. mars 2026 23:40
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Eimskip
Kristian Hlynsson fagnar á Laugardalsvelli.
Kristian Hlynsson fagnar á Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: EPA
„Það er mjög kalt hérna en bara skemmtilegt að koma til Kanada, maður hefur aldrei komið hingað áður," segir landsliðsmaðurinn Kristian Hlynsson sem er mættur með íslenska landsliðinu til Toronto þar sem framundan eru vináttulandsleikir gegn Kanada og Haítí.

Kristian segist setja stefnuna á að skora í landsliðstreyjunni í þessum glugga en hann hefur verið funheitur með félagsliði sínu, Twente í Hollandi.

Hann er með fimm mörk og eina stoðsendingu í síðustu sjö deildarleikjum.

„Maður hefur allavega verið að skora í síðustu leikjum og liðið hefur verið að vinna. Það er allt að detta saman, Það er geggjað. Það besta sem maður gerir er að skora í leik og vinna. Við erum á mjög góðu róli í deildinni, segir Kristian.

Hver er ástæðan fyrir því að hann hefur sprungið svona rækilega út síðustu vikur?

„Í byrjun tímabilsins var ég að fá mjög mörg færi en var ekki að klára þau. Ég er núna að klára færin og er að skora, þetta hefur verið að detta."

Kristian, sem er 22 ára, hefur skorað tvö mörk í níu landsleikjum fyrir Ísland og er spenntur fyrir komandi verkefni.

„Það verður gaman að spila gegn andstæðingi eins og Haítí, eitthvað sem maður hefur ekki gert áður," segir Kristian en viðtalið við hann má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.



Sjá einnig:
Flottasta markið?
Bestu stuðningsmennirnir?
Hvernig hefur dómgæslan verið?
Hvað hefur komið mest á óvart?
Hver er ofmetnastur?
Hver er vanmetnastur?
Hverjir verða Íslandsmeistarar?
Hver hefur verið bestur?
Hvaða lið falla?
Atvik sumarsins?



Slapp
banner
banner