Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fim 26. mars 2026 13:30
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
Eimskip
Hákon Arnar Haraldsson. Þessi mynd er ekki tekin í kuldanum í Kanada!
Hákon Arnar Haraldsson. Þessi mynd er ekki tekin í kuldanum í Kanada!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hákon og Jonathan David náðu feikilega vel saman hjá Lille.
Hákon og Jonathan David náðu feikilega vel saman hjá Lille.
Mynd: EPA
Hákon Arnar Haraldsson, lykilmaður í íslenska landsliðinu, ræddi við Fótbolta.net á liðshótelinu í Kanada en framundan eru tveir vináttulandsleikir í Toronto; gegn Kanada á laugardaginn og svo við Haítí á þriðjudag.

Hvað viljum við sjá í þessum glugga?

„Við viljum halda áfram að bæta okkar leik. Þetta eru mjög góðir leikir til að gera það, varnarlega og sóknarlega. Mér fannst við fá á okkur of mörg mörk gegn Úkraínu, við fáum á okkur sjö mörk gegn Úkraínu í tveimur leikjum og það er of mikið ef við ætlum okkur að fara á EM," segir Hákon.

„Leikmennirnir sem við erum að fara að mæta hafa helling að keppa um. Þeir eru að berjast um að vera í HM hópnum. Þetta verður ekki beint æfingaleikjafílingur og ég býst við að það verði fullt af fólki á leiknum gegn Kanada. Þetta verður skemmtilegt verkefni til að takast á við."

Gaman að hitta hann aftur
„Við erum að fara að mæta mjög sterku liði og góðum einstaklingum. Þeir eru mjög sterkir og fá ekki mörg mörk á sig. Þeir pressa mikið og við þurfum að búa okkur undir það," segir Hákon um Kanada.

Skærasta stjarna Kanada er sóknarmaðurinn Jonathan David sem spilar fyrir Juventus. David gekk í raðir ítalska félagsins í fyrra eftir að hafa spilað með Hákoni hjá Lille en þeir tveir náðu gríðarlega vel saman á vellinum.

„Það var mjög leiðinlegt að missa hann. Hann er ógeðslega góður í fótbolta og er fótboltaheili. Við náðum vel saman en það var skiljanlegt fyrir hann að taka skref upp á við. Hann var búinn að vera þarna í fimm ár og vinna titil. Maður skilur hann vel."

„Það verður gaman að hitta hann aftur. Maður fær aðeins meiri löngun í að vinna því maður þekkir hann vel. Þetta verður mjög gaman."

Viðtalið við Hákon má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar tjáir hann sig meðal annars um endurkomu Orra Steins Óskarssonar, gengi Lille og drauma um ensku úrvalsdeildina.
Slapp
banner
banner