Fotbolti.net
Ester Ósk Árnadóttir
Ester Ósk Árnadóttir
Inkasso deildin - 1. deild karla
Grenivíkurvöllur
Haustveðrið að minna á sig en völlurinn lítur vel út
Magni
Magni
3 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
Gauti Gautason 16'1 - 0Kian Paul James Williams 22'2 - 02 - 189' Sindri SchevingGuðni Sigþórsson 91'3 - 1
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Magni með þetta í sínum höndum fyrir lokaumferðina

Hvað réði úrslitum?

Það skipti sköpum að vera fyrra liðið til að skora í þessum leik og Magni náði því eftir nokkuð jafnar upphafs mínútur. Eftir það var Þróttur í stöðugum eltingarleik.

Bestu leikmenn

1. Gauti Gautason

Vörn Magna var frábær í leiknum og þar var Gauti enginn undantekning. Hann var klettur í vörn Magna og leikmenn Þróttar komust lítið áleiðis gegn honum þrátt fyrir áhlaup. Skorar sömuleiðis fyrsta mark Magna sem setti tóninn fyrir leikmenn liðsins.

2. Kian Willams

Kian var virkilega öflugur hjá Magna. Átti góðar rispur, skapaði hættur, kom boltanum vel frá og sinnti varnarvinnunni líka. Tekur gott hlaup þegar hann skorar mark tvö fyrir Magna.

Atvikið

Þróttur pressaði Magna í seinni hálfleik. Þeir uppskera svo mark á 89 mínútu og búa til líflínu en Guðni skorar fyrir Magna mínútu síðar og gulltryggir liðinu stigin þrjú.

Hvað þýða úrslitin?

Magni fer upp fyrir Þrótt í 10 sæti og er með þetta í sínum höndum fyrir síðustu umferðina. Það munar nú stigi á Magna og Þrótt. Þróttur er komið í fallsæti eftir hreint ömurlegan ágústmánuð og þurfa nú að treysta bæði á sig og önnur úrslit í síðasta leik á móti Aftureldingu.

Vondur dagur

Róbert Hauksson fannst mér ekki eiga sérstakan dag í framlínunni hjá Þrótti. Það voru að koma fínir krossar frá báðum hliðum en mér fannst hann oft á tíðum ekki staðsetja sig nægjanlega vel eða biðja um boltann. Hins vegar er einhver veginn ekki hægt að setja þetta á einn mann. Það er eitthvað mikið að hjá liði sem er búið að tapa 6 leikjum í röð með markatöluna 5-19.

Dómarinn - 7

Kristinn átti ágætis dag. Mikill harka í leiknum, mikið af brotum enda mikið undir hjá báðum liðum. Fannst hann gera vel á mörgum stöðum en svo eru þessir vafadómar eins og markið sem var dæmt af hjá Þrótt og spurning hvort Agnar fær boltann í hendina þegar hann bjargar á línu. Það er eitthvað sem ég sá bara ekki nægjanlega vel til að setja mat á.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.