SKÝRSLAN: Víkingur Reykjavík Mjólkurbikarsmeistari 2019
Hvað réði úrslitum?
Víkingarnir voru einfaldlega bara betri í þessum leik. Aðstæðurnar í dag voru virkilega erfiðar og byrjuðu FH-ingar með vindinn í andlitið. Víkingar voru klaufar að ná ekki að nýta sín færi betur í fyrri hálfleik með vindinn í bakinu. Þórður Þorsteinn fær svo á sig klaufalegt víti snemma í seinni hálfleik sem að Óttar skorar sigurmarkið úr. Stuttu seinna fær Pétur Viðarsson beint rautt spjald og brekkan þá orðin of brött fyrir FH.
Bestu leikmenn
1. Júlíus Magnússon
Var drjúgur og naut sín vel á miðjunni. Gaf reynsluboltunum á miðju FH alvöru leik í dag og stóðst stóra prófið.
2. Guðmundur Andri Tryggvason
Guðmundur Andri var hrikalega góður í dag, bæði á boltanum og í andlega þættinum. Náði að pirra FH-inganna vel sem að hafði klárlega áhrif á spilamennsku þeirra.
Atvikið
Mjög auðvelt val. Rauða spjaldið sem að Pétur Viðarsson fékk. Er í baráttu við Guðmund Andra sem að fellur við. Í snúningnum stígur Pétur á bringu hans og fær að lýta beint rautt spjald. Ég efast ekki um það í eina sekúndu að þetta hafi verið algjört óviljaverk hjá Pétri. FH-ingar voru gjörsamlega æfir yfir dómnum.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur er Mjólkurbikarsmeistari árið 2019. Svo einfalt er það. Evrópubolti í Fossvoginum næsta sumar.
Vondur dagur
FH-ingar mega vera hundsvekktir með sína spilamennsku í dag, en til að vera sanngjarn byrja þeir að sjálfsögðu leikinn með vindinn í andlitinu. Þórður Þorsteinn fær á sig klaufalegt víti sem að Víkingur skorar sigur markið úr og Pétur Viðars fær klaufalegt rautt spjald sem að gerir nánast út um leikinn.
Dómarinn - 5
Pétur og hans menn voru í dag að dæma við gríðarlega erfiðar aðstæður og áttu í töluverðu basli með hann. Margar ákvarðanir sem að voru skrítnar og einfaldlega bara rangar. Hins vegar, ætla ég ekki að draga hann niður fyrir rauða spjaldið, þar sem að Pétur var nú þegar á gulu og alveg hægt að réttlæta það að hann fjúki útaf. Stórt atvik sem að fólk verður sennilega aldrei sammála um.



