SKÝRSLAN: Haukar enn á lífi eftir góðan sigur
Hvað réði úrslitum?
Haukar nýttu færin sín einfaldlega betur, Keflvíkingar fengu tvö góð marktækifæri stuttu áður en Haukar komust yfir. Haukarnir skoruðu svo þrjú mörk með stuttu millibili og var leikurinn aldrei í hættu eftir það.
Bestu leikmenn
1. Kristófer Dan Þórðarson
Skoraði tvö mörk í dag og kom sér í góðar stöður bæði í sókninni og í uppspilinu. Kominn með 5 mörk í tveimur leikjum núna.
2. Ásgeir Þór Ingólfsson
Fyrirliðinn stýrði sínum mönnum til sigurs hér í dag, skilaði flottri varnarvinnu og dreifði boltanum gríðarlega vel. Hornspyrnur hans voru einnig stór hættulegur og kom fyrsta mark leiksins úr einni slíkri.
Atvikið
Þriðja mark Haukanna gerði endanlega út um leikinn strax á 29 mínútu og er því atvik leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
Haukarnir fá hérna gríðarlega mikilvæg þrjú stig og í samblandi við úrslit annarra leikja þá kemur þessi sigur þeim í góða stöðu fyrir síðustu umferðina þar sem þeir leika á móti Gróttu.
Vondur dagur
Sóknarmenn Keflavíkur sáust lítið sem ekkert í leiknum nema þegar þeir voru dæmdir rangstæðir. Það var lítil sem engin tenging milli miðju og sóknar og má því setja spurningamerki um miðjuna líka en sóknarmennirnir fá þennan vafasama heiður í dag.
Dómarinn - 8
Formsatriði hjá Bjarna og hans teymi í dag, engar erfiðar ákvarðanir en líka engar rangar ákvarðanir. Fínn dagur hjá teyminu.



